Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. desember 2025 13:33 Lexi Picasso segist hafa flúið djöfla sína og áföll með því að ofkeyra sig í lyftingum. Hann missti lóð á höfuðið og skaddaðist á mænu. Alex Þór Jónsson, betur þekktur sem Lexi Picasso, skaddaðist á mænu þegar hann missti sextíu kílóa lóð á höfuðið. Hann segist hafa notað æfingar til að flýja djöfla sína og nauðgun sem hann varð fyrir í æsku. Hann fór til Kenía í aðgerð við mænuskaða en festist þar í þrjú ár vegna Covid-heimsfaraldursins.
Lexi, sem er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar, segist hafa lært auðmýkt og jákvætt hugarfar af því að hafa lent í mænuskaða og verið fastur í Afríku í miðjum heimsfaraldri. Lexi kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2016. „Ég átti að fara í aðgerð vegna mænuskaða, en taldi mig ekki vera í nógu góðu andlegu ástandi til að geta það og ákvað að fara til Kenía þar sem konan mín var. Ég hefði verið rúmliggjandi með enga aðstoð ef ég hefði farið í aðgerðina hérna heima án hennar, þannig að ég ákvað að ég yrði að fara út og ná í hana,“ segir Lexi. „En svo bara fljótlega eftir að ég er kominn út skellur heimsfaraldurinn á. Það lokaðist allt hratt og hlutirnir urðu mjög furðulegir á skömmum tíma,“ segir hann. Fékk sextíu kílóa lóð aftan á höfuðið Lexi fer í þættinum yfir aðdragandann að því hvernig hann varð fyrir mænuskaða. Slysið orsakaðist að miklu leyti af ofþjálfun vegna flótta undan eigin áföllum. „Ég tók tímabil þar sem ég var eins og brjálæðingur að lyfta og æfa og í raun kominn í algjöra ofþjálfun. Ég var að æfa fleiri fleiri klukkutíma á dag og sé það eftir á að ég var í raun að nota æfingarnar til að flýja sjálfan mig og djöflana mína,“ segir hann. „Svo gerist það á einni æfingunni að ég er að lyfta með stöng yfir höfðinu á mér og var ekki með grifflur og stöngin rann og það duttu sextíu kíló aftan á höfuðið á mér.“ Hafði ekki unnið úr nauðguninni Þegar hann rankaði við sér var hann kominn með þrengingu í mænuna og blöstu þá við fjölmörg vandamál. Hann sjái nú betur hvað leiddi hann á þennan stað. „Ég bjó á þessum tíma í kjallara hjá ömmu minni sem mér hafði verið nauðgað í þegar ég var yngri. Þegar ég horfi til baka er auðvelt að tengja það saman við það af hverju ég svaf bara fjóra tíma á næturna og var að æfa allt upp í átta klukkutíma á dag,“ segir hann. Hann taldi sig vera búinn að vinna úr áfallinu en svo var ekki. Hann vill því opna sig um nauðgunina og opna umræðuna. „Það er svo mikið af karlmönnum sem hafa lent í svona löguðu, en tjá sig ekki. Það þarf einhver að taka af skarið og segja frá, en ekki þegja. Þessir atburðir úr æsku urðu til þess að ég bjó til alls konar flóttamynstur til þess að þurfa ekki að mæta djöflunum sem voru innra með mér.” Hjálpaði að vita að barn væri á leiðinni Eftir að Lexi var kominn út til Naíróbí í Kenía áttaði hann sig fljótt á því að hann væri ekki að fara heim eins og hann hafði planað. „Ég fékk símhringingu frá utanríkisráðuneytinu þar sem mér var sagt að ég væri bara fastur og það væri ekki mikið hægt að gera að svo stöddu. Ég varð auðvitað lífhræddur og það bætti ekki úr skák að vera í stöðunni sem ég var í,“ segir hann. Lexi segir markvissar kælingar á hverjum degi hafa hjálpað við að minnka bólgur og á endanum komið honum úr hjólastólnum. Lexi gerði lagið „Nýlent“ með rapparanum Birni. „Sex mánuðum síðar var ég kominn úr þessum helvítis stól og bara kominn með staf í staðinn og gat byrjað að ganga um með hann. Ég ákvað að halda bara í jákvætt hugarfar og gera allt sem ég gæti gert til þess að ná mér í betra stand. Eitt af því sem hjálpaði mér mikið var þegar konan mín tilkynnir mér að hún sé ólétt og það hvatti mig áfram að vita að ég væri að verða faðir,“ segir hann. Lexi talaði um ýmislegt annað í hlaðvarpinu. Þar á meðal þegar hann kom eins og stormsveipur inn í íslenskt rapp árið 2016 eftir að hafa starfað með lagasmíðateyminu 808 Mafia í Atlanta. Hann lýsir því þegar tveir fulltrúar fíkniefnalöggæslunnar DEA tóku hann afsíðis og yfirheyrðu hann í sex tíma í von um að hann myndi kjafta frá og segja til samstarfsmanna sinna. Hægt er að horfa á hluta af viðtalinu við Lexa hér að neðan:
Kenía Podcast með Sölva Tryggva Tónlist Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira