NBA-leikmaður með krabbamein Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2025 07:33 Nikola Topic á enn eftir að spila fyrsta leik sinn í NBA með Oklahoma City Thunder en á samt einn meistarahring. Getty/Joshua Gateley Nikola Topic, bakvörður Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta, hefur hafið krabbameinslyfjameðferð eftir að hafa greinst með eistnakrabbamein.
Sam Presti, framkvæmdastjóri Thunder, staðfesti þetta en sagði að læknar væru „einstaklega jákvæðir“ varðandi langtímahorfur Topic.Topic var valinn tólfti í nýliðavali 2024 en var frá keppni á síðasta tímabili á meðan hann jafnaði sig eftir slitið krossband. View this post on Instagram A post shared by Basketball Network (@basketball.network) Topic gekkst undir aðgerð í byrjun október á MD Anderson-krabbameinsmiðstöðinni í Houston þar sem tekið var vefjasýni. Eftir að hafa fengið niðurstöðurnar bað leikmaðurinn Thunder um að greina ekki opinberlega frá greiningunni fyrr en hann hefði hafið krabbameinslyfjameðferðina.Topic hefur getað æft á meðan hann er í krabbameinslyfjameðferð, en Presti sagði að engin tímaáætlun væri fyrir því hvenær þessi tuttugu ára serbneski bakvörður myndi leika sinn fyrsta leik í NBA.„Einu væntingarnar sem við höfum til hans eru að hann einbeiti sér að þessu,“ sagði Presti. „Þetta er forgangsatriði hans. Hann mun snúa aftur í körfuboltann þegar hann getur, en við setjum augljóslega engan tímaramma eða væntingar á það. Hann hefur okkar fulla stuðning, hvatningu og ást.“Topic vakti athygli fyrir það að verða NBA-meistari á síðustu leiktíð án þess að spila eina sekúndu allt tímabilið. Hann var í leikmannahópi meistaraliðsins en fékk aldrei að fara inn á völlinn. View this post on Instagram A post shared by ClutchPoints (@clutchpoints)
NBA Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ármann - Keflavík | Bragi mætir gömlu félögunum Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Álftanes - Höttur | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Sindri - ÍR | Fyrsti leikurinn á Höfn Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Sjá meira