„Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. október 2025 11:30 Eldri kona sem hringdi inn í Reykjavík síðdegis lýsti því þegar hún uppgötvaði að maður geti orðið hrukkóttur í kringum munninn við að sjúga lítil typpi. Getty Kona á áttræðisaldri sem hringdi inn í símatíma á Bylgjunni í gær vakti heldur betur lukku þegar hún fór að ræða kynlíf, munnmök og áhrif þess að sjúga lítil typpi. Ekki er ljóst hvort um háþróaðan símahrekk er að ræða eða óvenju opinskáa eldri konu.
Útvarpsþátturinn Reykjavík síðdegis er gjarnan með símatíma þar sem hlustendur geta hringt inn og rætt málefni líðandi stundar eða lýst skoðun sinni á hinu og þessu. Fyrsti innhringjandi gærdagsins var býsna óvenjulegur. „Helga heiti ég og vil tala um kynfræðsluna. Ég ætla að byrja á því að segja að ég er á áttræðisaldri og þegar ég var í skóla var ekki mikil kynfræðsla,“ sagði hún en kynfræðsla sem hluti af fermingarfræðslu hefur verið milli tannanna hjá ýmsu fólki undanfarið. Helga lýsti því síðan að kynfræðslan í hennar ungdómi hafi falist í einni skýringarmynd á hálfri blaðsíðu í líffræðibók. „Það var ein mynd og hún sýndi hvaðan barnið kom út sem var mjög fróðlegt fyrir okkur, það gat alveg eins komið út um nefið, við vissum það ekki þá. Við vissum það þegar við fengum að sjá þessa mynd, þá opnuðust augun, það var eitthvað þarna fyrir neðan sem átti að nota,“ sagði Helga. Símtalið óborganlega má heyra að neðan. Gat varla horft á foreldra sína fyrir skömm Helga rifaði í kjölfarið upp hvernig hún upplifði skömm í tengslum við kynlíf og frjósemi foreldra sinna. „Við erum tólf systkinin og vinkona mín, þau voru þrjú, og hún gat núið mér það um nasir og sett salt í sárin og allt hvað pabbi minn og mamma mín væru miklir dónar, þau væru búin að gera það tólf sinnum en pabbi hennar og mamma gerðu það bara þrisvar,“ sagði Helga. „Ég skammaðist mín svo og varla gat horft á foreldra mína fyrir skömm.“ Sjá einnig: Kynfræðsla ekki endilega forgangsatriði í fermingarfræðslu Ertu með öðrum orðum að segja að þér finnist í lagi að fræða börn um kynlíf? „Mér finnst að það eigi að fræða börn um þetta. Ég veit að sex og sjö ára börn vita ýmislegt,“ sagði hún. En á þetta að vera í fermingarfræðslu? „Af hverju ekki?“ spurði Helga á móti. Enn að fræðast á áttræðisaldri Helga rifjaði síðan upp þegar hún fór í sextán ára afmæli barnabarns síns nýverið. Hún hafi farið inn í herbergi til að ræða við þrjú barnabarna sinna, sextán ára afmælisbarnið, átján ára dreng og annan 22 ára. „Ég fór inn í herbergið til að spjalla við þau og vera aðeins með þeim á þeirra nótum,“ sagði Helga um afmælisveisluna. Hún hafi svo spurt strákana: „Eru þið ekki farnir að horfa á stelpur?“ Svörin voru misjöfn, sá elsti kannaðist við slíkt meðan stúlkan gaf lítið fyrir gláp strákanna. Krakkarnir fræddu ömmu sína síðan um það að fólk væri orðið „lögríða“ þegar það næði átján ára aldri. „Ég er kominn á áttræðisaldur og er enn að fræðast,“ sagði Helga. „Þessi helvítis typpi“ séu kannski misstór Til marks um það hvað hún sé enn að læra um nýja hluti hafi hún nýverið verið með vinkonum sínum og lært um heldur óvenjulega skýringu á hrukkumyndun. „Djöfull er ég að fá mikið af hrukkum í kringum munninn,“ hafi Helga sagt við vinkonurnar. Hrukkótt eldri kona sem hefur lifað tímana tvenna.Getty „Veistu ekki af hverju það er?“ hafi ein vinkonan svarað. „Nei.“ „Það er af því þú hefur sogið svo mjóa,“ sagði vinkonan þá. Helga fattaði ekki hvað vinkonan meinti fyrr en hún hlustaði á Bítið þar sem var rætt við lýtalækni um typpastækkanir og typpalengingar. „Já, þeir eru kannski mismunandi á stærð, þessi helvítis typpi,“ sagði Helga þá við þáttastjórnendurna. Það er margt í þessu Helga. „Þetta er ýmislegt sem má fræða börnin um. Það á til dæmis að segja stelpunum: ,Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar',“ sagði hún að lokum og batt annar þáttastjórnenda endi á samtalið í kjölfarið. Hægt er að hlusta á símatíma gærdagsins í heild sinni hér að neðan en Helga er fyrsti innhringjandinn:
Kynlíf Grín og gaman Reykjavík síðdegis Bylgjan Eldri borgarar Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira