Heitasta handatískan í dag Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. september 2025 13:00 Handatískan er fjölbreytt og skemmtileg um þessar mundir. SAMSETT Tískubylgjur koma fram á ýmsum sviðum og eru neglur og hendur þar engin undantekning. Ljósmyndari í New York fylgist grant með þessu á hverjum degi og myndaði á dögunum hendurnar á aðal tískusérfræðingunum á tískuvikunni í stórborginni.
Ljósmyndarinn Hannah La Follette Ryan heldur uppi Instagram reikningnum Subway hands og tekur ótal skemmtilegar handamyndir, aðallega í neðanjarðarlestunum. Ekki bara af naglatískunni heldur höndunum í allri sinni dýrð, veskjum sem hendurnar halda á, skartinu sem þær rokka og fleira til. View this post on Instagram A post shared by Chloe Malle 🥐 (@chloemalle) Á tískuvikunni mátti sjá mikið um stórt og jafnvel svolítið undarlegt skart í ýmsum litum og útfærslum, svo sem höfuð, geimverur og bangsar. Rándýr, lítil hátískuveski með glingri virðast sækja í sig veðrið í vetur og sömuleiðis flippaðar neglur, til dæmis neglur með risa perlum og skemmtilegum munstrum. Labubu lét sig að sjálfsögðu ekki vanta enda er bangsinn orðinn að einhverju heitasta trendi ársins, hvort sem hann er fastur við veski, lyklana, sem armband eða annað skemmtilegt. Handatískunni eru engin takmörk sett.
Tíska og hönnun Bandaríkin Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira