„Menn hafa gefið sig 110 prósent í verkefnið“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 20. september 2025 19:00 Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ánægður eftir leik Vísir/Diego ÍA sigraði Vestra 0-4 á Ísafirði í dag og heldur áfram markaveislu síðustu tveggja leikja liðsins. Þrjú mikilvæg stig fyrir ÍA í farteskið og hafa þeir náð að lyfta sér upp úr fallsæti í bili allavega. „
Ég er gríðarlega ánægður með liðið í dag. Ég er ánægður með hversu mikið liðið lagði á sig. Menn voru að gefa sig alla í þetta og ég er gríðarlega stoltur af liðinu í dag,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, ánægður eftir sigur liðsins í dag. „Við vorum með boltann nánast allan fyrri hálfleikinn. Við lokuðum á þá og þeir héldu boltanum fram. Það var ekki mikill vandræðagangur á okkur að eiga við það þannig séð. Það sem breytist svo í seinni hálfleik er að þeir koma ofar á völlinn og ná að pressa á okkur. Þá opnast fleiri svæði á vellinum fyrir okkur og við nýttum okkur það.“ „Við mætum KR á heimavelli í næstu umferð og mér líst mjög vel á það. Við töluðum um það inni í klefa að þetta er ongoing við erum ekkert búnir að halda okkur uppi með þessum sigri. Við gerum okkur grein fyrir því að það er mikil barátta eftir.“ ÍA hefur skorað þrjú til fjögur mörk í síðustu þremur leikjum og hafa fengið á sig núll til eitt mark. Liðið er á fínni siglingu og hafa sótt góð úrslit í síðustu leikjum. „Í síðustu þremur leikjum hafa menn gefið sig 110 prósent í verkefnið. Það er gríðarleg vinnsla í leikmönnum, góð einbeiting í liðinu og ef þú skilar því þá ertu í góðum málum,“ sagði Lárus að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla ÍA Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira