Stórtónleikar og flugeldasýning að vanda á Ljósanótt Lovísa Arnardóttir skrifar 2. september 2025 18:01 Árgangagangan er árlegur viðburður á hátíðinni. Reykjanesbær Ljósanótt, fjölskyldu- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, fer fram í 24. sinn frá 4. til 7. september. Um 150 viðburðir eru skráðir í dagskrá Ljósanætur en meðal þeirra sem koma fram eru Væb, Steindi Jr. og hljómsveitin Valdimar. Hátíðinni lýkur með flugeldasýningu.
Í tilkynningu kemur fram að hátíðin sé þátttökuhátíð þar sem Reykjanesbær skapar umgjörðina en dagskráin verður til með framlagi íbúa, félaga og fyrirtækja. Um 60 fyrirtæki styrkja hátíðina, sem gerir kleift að halda úti jafn fjölbreyttri og glæsilegri dagskrá og raun ber vitni. Ljósanótt dregur nafn sitt af lýsingu á sjávarhömrum „Bergsins“, ljósaverki sem afhjúpað var á fyrstu Ljósanóttinni árið 2000 eftir hugmynd Steinþórs Jónssonar, þáverandi formanns Ljósanæturnefndar. Á hverju ári er kveikt á ljósunum þegar hátíðin nær hápunkti sínum með stórtónleikum og flugeldasýningu á laugardagskvöldinu. Hátíðinni lýkur ár hvert með flugeldasýningu. Reykjanesbær Setning og dagskráin fram undan Hátíðin verður formlega sett að viðstöddum leik- og grunnskólabörnum þegar formaður Ungmennaráðs Reykjanesbæjar dregur marglitan Ljósanæturfána að húni á einni hæstu fánastöng landsins. Á fimmtudegi opna listsýningar víða um bæ og verslanir bjóða sérstök tilboð. Föstudagur er orðinn svokallaður „kjötsúpudagur“ þar sem öllum gestum er boðið upp á nokkur tonn af kraftmikilli kjötsúpu frá Skólamat undir tónleikum. Á sama tíma fara fram heimatónleikar í gamla bænum og útitónleikar í Holtahveri. Báðir tónleikar eru samkvæmt tilkynningu haldnir að frumkvæði íbúa. Í tilkynningu kemur svo fram að laugardagurinn hefjist með einstökum viðburði, svokallaðri Árgangagöngu, þar sem árgangarnir ganga niður Hafnargötu. „Þeir yngstu sem eru aftast ganga fyrst af stað, fram hjá þeim eldri, sem bætast svo í gönguna hver á fætur öðrum og þannig má sjá heilt æviskeið af íbúum ganga saman að hátíðarsvæðinu þar sem bæjarstjóri tekur á móti hópnum og býður gesti velkomna,“ segir í tilkynningu. Fjölmargir sækja hátíðina ár hvert. Reykjanesbær Stórtónleikar og flugeldasýning Laugardagskvöldið nær svo hámarki með stórtónleikum á útisviði þar sem fram koma VÆB, hljómsveitin Valdimar og Stuðlabandið með Siggu Beinteins og GDRN. Eftir það tekur við flugeldasýning, ljósin á Berginu kvikna og Auddi og Steindi slá botninn í tónleikana. Dagskránni lýkur kl. 22:30 en tónleikunum verður útvarpað í beinni á Rás 2. Í tilkynningu segir að sunnudagurinn hafi svo nýst gestum vel til að skoða sýningar sem ekki gafst færi á fyrr, gera góð kaup og klára tívolímiðana. Ókeypis barnadagskrá heldur áfram og boðið er upp á tónleika í Höfnum þar sem Elíza Newman og Hjálmar stíga á svið, áður en hátíðinni er lokað með Ljósanæturmessu í Keflavíkurkirkju þar sem Bjartmar Guðlaugsson kemur fram. Alla dagskrá Ljósanætur er að finna á ljosanott.is og einnig má fylgjast með hátíðinni á samfélagsmiðlum.
Ljósanótt Reykjanesbær Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira