Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 20. ágúst 2025 18:00 Erna og Þorsteinn giftu sig við fallega athöfn um helgina. Silla Páls Söngkonan Erna Þórarinsdóttir og arkitektinn Þorsteinn Geirharðsson gengu í hjónaband 16. ágúst síðastliðinn. Brúðkaupsveislan var lífleg og gleðileg þar fallegar ræður og tónlistaratriði settu skemmtilegan svip á kvöldið.
Erna er ein þekktasta bakrödd Íslands. Hún söng meðal annars með hljómsveitinni Brunaliðinu á árunum 1979–1980 og var ásamt Evu Ásrúnu Albertsdóttur kölluð ein af „ríkisröddunum“ fyrir störf sín í sjónvarpi og í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hún hefur einnig sungið með hljómsveitum á borð við Módel, Snörunum og Hver og verið áberandi í bakraddasöng á fjölda platna, meðal annars með Páli Óskari, Nýdönskum, Sálinni hans Jóns míns, Bjartmari Guðlaugssyni og Björgvini Halldórssyni. Þrátt fyrir farsælan tónlistarferil ákvað Erna að snúa sér að öðrum brautum. Hún lauk meistaranámi í sálgæslu 61 árs að aldri og starfar í dag sem ráðgjafi á Landspítalanum. Það var bæði fjölmennt og góðmennt í brúðkaupinu, þar sem listafólk úr ýmsum áttum skemmti gestum langt fram á kvöld. Þar á meðal stigu leikkonurnar Aníta Briem og Halldóra Geirharðsdóttir á svið og héldu fallega ræðu fyrir brúðhjónin, en Erna er móðir Anítu og Þorsteinn er bróðir Halldóru. Daginn eftir bauð brúðguminn í aðra veislu til að fagna sjötugsafmæli sínu en hann átti afmæli þann 18. ágúst, tveimur dögum eftir brúðkaupið.
Brúðkaup Ástin og lífið Tímamót Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Sjá meira