Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. júlí 2025 11:59 Fjóla Kristín Nikulásdóttir mun leiða kórinn. Barnakór Hallgrímskirkju verður stofnaður í haust undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Kórinn er ætlaður börnum í þriðja til fimmta bekk og tekur þátt í helgihaldi kirkjunnar tvisvar á önn og heldur einnig sína eigin tónleika.
Greint er frá stofnun kórsins í tilkynningu á vef Hallgrímskirkju. Þar segir að markmið kórsins sé að vekja áhuga barnanna á söng og tónlist í gegnum leik og gleði, kenna undirstöðuatriði í söngtækni, stuðla að jákvæðri upplifun og byggja upp sterkan og samheldinn félagsskap. Æfingar fara fram á miðvikudögum frá klukkan 16:30 til 18:00 og verður kórinn leiddur af Fjólu Kristínu Nikulásdóttur, sem er kennari, kórstjóri og söngkona að mennt. Auk þess að starfa sem kórstjóri hefur Fjóla kennt leiklist í grunnskóla um árabil og sett upp fjölda söngleikja og leikrita með börnum og unglingum. Fjóla er með meistaragráðu í óperusöng og hefur einnig starfað sem atvinnusöngkona.
Kórar Börn og uppeldi Þjóðkirkjan Hallgrímskirkja Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira