Hallgrímur átti auðvelt með að lesa gamlan læriföður Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. júlí 2025 11:32 Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, þekkir vel til í Danmörku. Vísir/Pawel Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, átti auðvelt með að lesa í leikskipulag Silkeborg í gærkvöldi þar sem hann hefur sjálfur spilað í svipuðu leikskipulagi, undir stjóranum Kent Nielsen.
Hallgrímur spilaði heillengi í dönsku úrvalsdeildinni, með Sönderjyske, Lyngby og OB. Hjá OB var hann þjálfaður af Kent Nielsen, núverandi þjálfara Silkeborg. „Ég ber mikla virðingu fyrir Kent Nielsen og við erum ánægðir með góð úrslit hér í Danmörku, þar sem íslensk lið hafa oft lent í vandræðum“ sagði Hallgrímur um sinn gamla læriföður í viðtali við Bold í morgun. Hallgrímur Jónasson í leik með OB. Vísir/Getty KA gerði 1-1 jafntefli gegn mun sterkari andstæðingi í gær og Hallgrímur segist hafa nýtt þekkingu sína á dönskum fótbolta. „Ég fylgist enn vel með dönsku úrvalsdeildinni og spilaði undir Kent Nielsen, þannig að ég veit hvernig hann gerir hlutina. Það er ekki alltaf auðvelt að fá upplýsingar um andstæðinginn í Evrópukeppnum, en í þessu tilviki var það frekar auðvelt“ sagði Hallgrímur. Seinni leikur liðanna fer fram á Greifavellinum á Akureyri í næstu viku og þar ætlar KA að gera gestunum erfitt fyrir. „Við höfum enn meiri trú á verkefninu núna. Við erum með reynslumikið lið sem fór í gegnum þrjár umferðir í undankeppninni fyrir tveimur árum. Það verður mun erfiðara fyrir Silkeborg að spila að á okkar heimavelli“ sagði Hallgrímur.
Danski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ „Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Sjá meira