LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2025 15:15 LeBron James treður boltanum ofan í körfuna í leik Portland Trail Blazers og Los Angeles Lakers. getty/Alika Jenner Hinn fertugi LeBron James skoraði fjörutíu stig þegar Los Angeles Lakers sigraði Portland Trail Blazers, 102-110, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Luka Doncic var fjarri góðu gamni hjá Lakers vegna kálfameiðsla en LeBron tók á sig auknar byrðar í fjarveru Slóvenans. Hann skoraði fjörutíu stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í leiknum. LeBron James with another 40-ball at 40 🤩👑 40 PTS👑 8 REB👑 4 AST👑 2 STL👑 4 3PM pic.twitter.com/RKKXAqSBea— NBA (@NBA) February 21, 2025 LeBron tapaði boltanum ellefu sinnum en hitti úr fjórtán af 24 skotum sínum utan af velli og nýtti öll átta vítaskotin sín. Austin Reaves átti einnig góðan leik og skoraði 32 stig og gaf sjö stoðsendingar. „Hann storkar lögmálunum yfir það sem telst eðlilegt. Ekki bara líkamlegi þátturinn og það sem hann framkvæmir heldur hugarfarið. Hann er milljarðamæringur og er fertugur að spila annan leikinn sinn á jafn mörgum dögum eftir 22 ár í deildinni og með öll metin og viðurkenningarnar. Það er frábært að þjálfa hann. Hann setur viðmiðið hvernig þú átt að nálgast leikinn,“ sagði JJ Redick, þjálfari Lakers, eftir leikinn í Portland. LeBron hefur átt tvo fjörutíu stiga leiki síðan hann varð fertugur 30. desember síðastliðinn og Lakers hefur unnið þá báða. Í vetur er hann með 24,3 stig, 7,7 fráköst og 9,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Lakers er í 5. sæti Vesturdeildarinnar með 33 sigra og 21 tap. Portland er í 13. sætinu með 23 sigra og 33 töp.
NBA Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira