Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sindri Sverrisson skrifar 5. desember 2024 13:02 KR-ingar hafa spilað sinn síðasta leik á grasi á Meistaravöllum, að minnsta kosti í bili. vísir/Anton Í dag verður fyrsta skóflustunga tekin á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga, þar sem leggja á gervigras í stað grasvallarins sem þetta stórveldi í íslenskum fótbolta hefur spilað heimaleiki sína á.
Um er að ræða fyrsta áfanga af nokkrum í endurbótum hjá KR-ingum sem næsta sumar geta spilað á glænýjum gervigrasvelli. Líkt og á síðasta tímabili verða því aðeins þrjú lið næsta sumar í Bestu deild karla, sem spila heimaleiki sína á grasi. Það verða ÍA, FH og nýliðar ÍBV. Víkingur, Breiðablik, Valur, Stjarnan, Fram, KA, Vestri og nú KR spila á gervigrasi, líkt og nýliðar Aftureldingar. Liðin sem féllu úr Bestu deildinni, HK og Fylkir, léku bæði heimaleiki sína á gervigrasi. Kvennalið KR, sem vann sig upp úr 2. deild og spilar því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð, mun að sjálfsögðu einnig spila heimaleiki sína á nýja gervigrasinu á Meistaravöllum. KR-ingar áttu í talsverðum vandræðum vegna vallarmála á þessu ári og hóf liðið bæði og lauk tímabilinu á gervigrasvelli Þróttar í Laugardal. Þá þurfti að loka æfingavelli félagsins í ágúst vegna slysahættu sem ónýtt gervigras olli. Þórhildur Garðarsdóttir, formaður KR, sagði þá við Vísi að kvartað hefði verið ítrekað undan vellinum vegna óvandaðra vinnubragða við lagningu gervigrassins. Meistaraflokkur KR æfði því meðal annars á æfingasvæði á Starhaga, sem ella hefði ekki verið nýtt, og meiddust tveir leikmenn karlaliðsins þar á æfingu í september.
Besta deild karla KR Lengjudeild kvenna Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira