Teitur Örn frábær og Gummersbach mætir FH Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. september 2024 15:59 Teitur Örn hefur teygt vel á fyrir leik dagsins. Uros Hocevar/Getty Images Þýska handknattleiksfélagið Gummersbach fór þægilega áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta eftir gríðarlega öruggan sigur á Mors-Thy frá Danmörku.
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar unnu leik liðanna í Danmörku með 13 marka mun og því má segja að leikur dagsins hafi verið formsatriði, sem hann og var. Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum þegar honum var lokið, staðan þá 20-16. Í þeim síðari voru yfirburðirnir enn meiri og vann Gummersbach á endanum níu marka sigur, lokatölur 39-30. Teitur Örn Einarsson fór hamförum í leiknum en hann skoraði sjö mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Þá skorað Elliði Snær Viðarsson tvö mörk. Það er þegar ljóst í hvaða riðli Gummersbach spilar og kemur Íslendingaliðið í Kaplakrika til að mæta FH í haust. Í riðlinum eru einnig Sävehof frá Svíþjóð og Fenix Toulouse frá Frakklandi. Þá skoraði Díana Dögg Magnúsdóttir tvö mörk þegar Blomberg-Lippe tapaði fyrir Zwickau á útivelli í 1. umferð þýsku úrvalsdeildar kvenna, lokatölur 27-21. Tapið hefur verið extra súrt fyrir Díönu Dögg sem samdi við Blomberg-Lippe í sumar eftir að hafa leikið með Zwickau þar áður.
Handbolti Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira