„Karlmenn vilja ekkert vita um þvagleka“ Íris Hauksdóttir skrifar 2. nóvember 2023 17:01 Fanney Magnúsdóttir sjúkraþjálfari segir mikilvægt að kynna sér mikilvægi grindarbotnsæfinga. „Grindarbotninn er stærri en fólk heldur. Hann nær aftur frá rófubeini, í kringum endaþarminn og er á stærð við lófaflöt ef maður myndi setja á spöngina,“ segir Fanney Magnúsdóttir, sjúkraþjálfari. „
Ég hugsa að breytingar á samfélaginu hafa gert það að verkum að við konur þurfum ekki að fela allt okkar. Það má bara ræða öll svona vandamál sem hafa kannski verið feimnismál því karlmenn hafi ekki viljað heyra þau. Þeir vilja ekkert heyra um einhvern þvagleka, þeir bara snúa við.“ Fanney segir grindarbotninn töluvert stærri en flestir geri sér grein fyrir.aðsend Fanney er nýjasti viðmælandi Spegilmyndarinnar. Þar bendir hún á að karlmenn geta einnig átt við vandamál að stríða tengt grindarbotninum og geta því einnig verið með þvagleka, risvandamál og allskonar vandamál tengt blöðruhálskirtlinum. Grindarbotnsæfingar mikilvægari en fólk gerir sér grein fyrir Fanney nefnir að oft finnist konum þær vera einar í heiminum að takast á við vandamál sem hægt er að rekja til grindarbotnsins sem er í ójafnvægi hvort sem hann er of slappur, þreyttur eða ofspenntur. Stundum sé stór partur af meðferðinni að konur geti sagt frá vandamálunum sínum og að einhver hlusti á þær. „Margar konur hafa reynt að opna sig við lækna sem hafi ekki getað hjálpað, en það er svo mikilvægt að þær fái viðurkenningu á vandamálinu. Grindarbotnsæfingar geta verið flóknar þegar fólk veit ekki hvernig á að gera þær æfingar. Hvernig áttu að kunna að spenna einhvern vöðva þegar þú veist ekki einu sinni hvar hann liggur? Ég byrja alla tíma á því að sýna konum grindarbotninn því flestar konur halda að þetta sé bara rétt í kringum leggöngin en svo er hann bara miklu stærri. Um leið þú veist hvar hann liggur er miklu auðveldara að átta sig á því hvernig hann hreyfist og spennist. Ef þú hugsar um að það að vera með herðarnar alltaf upp að eyrum allan daginn þá færðu vöðvabólgu, höfuðverk og þessa spennu, þú finnur óþægindi og líður ekki vel. Flestir vöðvarnir okkar virka eins og grindarbotninn er ekkert öðruvísi. Spennuverkir í grindarbotni mikið vandamál Það geta verið verkir í mjöðmum og mjóbaki sem er mjög algengt, svona þungir þreytuverkir í mjöðmum sem fara aldrei alveg. Það getur verið sársauki við kynlíf, óþægindi eftir fullnægingu og krampatilfinning. Þú getur verið með þvagleka. Hægðatregða er mjög algeng í tengslum við svona spennuvandamál og það eru svolítið fjölbreytt einkenni og þú getur verið með einhver en ekki endilega öll.“ Fanney segir að margir kvensjúkdómalæknar geti skoðað og greint viðkomandi en flestir sendi konur áfram til sjúkraþjálfara sem sérhæfa sig í meðferðum við þessum vandamálum. „Fyrsta sem maður gerir er að taka góða sögu til hjálpa manni að greina vandann og svo skoðar maður hreyfingar í mjöðmum og mjóbaki en til þess að greina beint vandamál með grindarbotninn þá gerum við það með þreyfingu upp í leggöng. Þvagleki getur verið mjög hamlandi Það eru fleiri konur þarna úti með bindi daglega heldur að þú getur ímyndað þér. Bara til öryggis. Ef þær hósta eða hnerra þá kemur eitthvað smá,“ segir Fanney og telur að þær konur sem eru með minniháttar þvagleka séu ekki endilega að leita sér aðstoðar. „Margar halda að þetta sé eðlilegt ástand eftir barneignir þar sem þetta er svo algengt. Það er kannski eðlilegt fyrstu vikurnar eftir barneignir en við segjum aldrei að það sé eðlilegt ástand þrátt fyrir að þetta sé algengt, það eru til lausnir.“ Þáttinn í heild má hlusta á hér fyrir neðan.
Heilsa Tengdar fréttir „Þetta er miklu algengara en við gerum okkur grein fyrir“ Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og eigandi skólans Makeup Studio Hörpu Kára, er nýjasti gestur Marín Möndu Magnúsdóttur í hlaðvarpsþættinum Spegilmyndin. Í þættinum fjallar hún meðal annars um húðumhirðu og gagnleg ráð þegar kemur að förðunarvörum. 20. október 2023 20:00 Tengdi getnaðarlim manns sem hafði skorið hann af Hannes Sigurjónsson lýtalæknir ræðir við Marín Möndu Magnúsdóttir í hlaðvarpsþættinum, Spegilmyndin, um hin ýmsu fegrunartrend á samfélagsmiðlum og tískubylgjur í fegrunarlækningum. 18. september 2023 20:00 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira
„Þetta er miklu algengara en við gerum okkur grein fyrir“ Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og eigandi skólans Makeup Studio Hörpu Kára, er nýjasti gestur Marín Möndu Magnúsdóttur í hlaðvarpsþættinum Spegilmyndin. Í þættinum fjallar hún meðal annars um húðumhirðu og gagnleg ráð þegar kemur að förðunarvörum. 20. október 2023 20:00
Tengdi getnaðarlim manns sem hafði skorið hann af Hannes Sigurjónsson lýtalæknir ræðir við Marín Möndu Magnúsdóttir í hlaðvarpsþættinum, Spegilmyndin, um hin ýmsu fegrunartrend á samfélagsmiðlum og tískubylgjur í fegrunarlækningum. 18. september 2023 20:00