Frumsýningu á Kenilworth Road í ensku úrvalsdeildinni seinkað Hjörvar Ólafsson skrifar 15. júlí 2023 06:01 Verið að lappa upp á Kenilworth Road, heimavöll Luton Town. Vísir/Getty Fyrsta heimaleik Luton Town í sögunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla hefur verið verið frestað þar sem heimavöllur liðsins verður ekki klár í tæka tíð fyrir leik liðsins gegn Burnley.
Þrátt fyrir að forráðamenn Luton Town haldi því fram að nauðsynlegar endurbætur á vellinum til þess að standast kröfur ensku úrvalsdeildinnar séu á undan áætlun hafa forráðamenn deildarinnar komist að þeirri niðurstöðu í samráði við félögin að skynsamlegast sé að fresta leiknum. Luton Town hefur farið úr því að spila í fimmtu efstu deild árið 2014 í ensku úrvalsdeildina en liðið mun leika á stærsta sviðinu í fyrsta skipti á komandi keppnistímabili. Heimavöllur Luton Town, Kenilworth Road, tekur 10.356 manns í sæti og verður hann minnsti völlurinn sem hýst hefur leik í ensku úrvalsdeildinni. Ráðast þurfti í 10 milljón punda framkvæmdir á vellinum til þess að fá leyfi til þess að spila þar í deild þeirra bestu. Nú þykir hæpið að þeim framkvæmdum sem eru í fullum gangi verði lokið þegar Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans hjá Burnley áttu að mæta á Kenilworth Road 19. ágúst næstkomandi og af þeim sökum verður leiknum seinkað.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira