Heimsókn í skóla: Svipað merkileg heimsókn og þegar Michael Jackson mætti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. mars 2023 18:16 Eva Margrét kíkti í Tækniskólann. Síðasta viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem Menntaskólinn á Tröllaskaga og Tækniskólinn áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.
Eva skellti sér í Tækniskólann þar sem hún líkti heimsókn sinni við það þegar poppstjarnan Michael Jackson kom þangað fyrir rúmum þrjátíu árum. Á milli þess sem Eva söng lög með Bríeti og úr kvikmyndinni High Scool Musical ræddi hún einnig við keppendur í liðsmenn Tækniskólans sem taka þátt í FRÍS. Tækniskólinn, sem hefur fagnað sigri á Framhaldsskólaleikunum undanfarin tvö ár, vann að lokum sigur gegn Menntaskólanum á Tröllaskaga síðastliðinn miðvikudag og er því á leið í undanúrslit. Heimsókn Evu í skólann má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Heimsókn í skóla: Svipað merkileg heimsókn og þegar Michael Jackson mætti Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi mætast í fyrri undanúrslitaviðureign mótsins. Viðureignin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi, en bein útsending hefst klukkan 19:30.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti