Stórt skref Sverris Inga og félaga í átt að bikarúrslitum Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2023 18:56 Sverrir Ingi var í liði PAOK í dag. Vísir/Getty Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem vann 5-1 stórsigur á Lamia í gríska bikarnum í knattspyrnu í dag.
PAOK hefur verið að berjast við topp grísku deildarinnar í vetur en Lamia á hinum enda töflunnar. PAOK sló út stórlið Panathinaikos í 8-liða úrslitum en leikurinn gegn Lamia í dag var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum. Það var ljóst frá upphafi að gestirnir frá PAOK ætluðu sér sigur í dag. Þeir komust yfir strax á fyrstu mínútu með marki frá Khaled Naray og Giannis Konstantelias kom þeim í 2-0 á 25.mínútu en þannig var staðan þegar flautað var til hálfleiks. Í síðari hálfleik bættu gestirnir síðan við þremur mörkum á sjö mínútna kafla. Douglas Augusto skoraði þriðja markið á 62.mínútu, Brandon Thomas það fjórða fimm mínútum síðar og Joan Sastre fimmta markið á 69.mínútu. Lamia klóraði í bakkann í uppbótartíma en lokatölur leiksins voru 5-1 og PAOK því í afar góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna í undanúrslitunum. Sverrir Ingi lék allan leikinn í vörn PAOK. AEK er í góðri stöðu í hinni viðureigninni eftir 3-0 sigur á Olympiacos í fyrri leik þeirra liða. Síðari leikir undanúrslitanna fara fram 12.-13. apríl. PAOK varð síðast bikarmeistari fyrir tveimur árum og nú búnir að stíga stórt skref í átt að úrslitaleik gríska bikarsins í vor.
Gríski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira