Mbappé misbýður bjórinn og neitar að auglýsa Budweiser Valur Páll Eiríksson skrifar 8. desember 2022 10:31 Mbappé hefur í bæði skiptin sem hann hefur verið valinn maður leiksins snúið bikarnum með þessum hætti svo að Budweiser merkið sjáist ekki. Mark Metcalfe - FIFA/FIFA via Getty Images Kylian Mbappé hefur vísvitandi neitað að auglýsa bandaríska bjórframleiðandann Budweiser í kringum heimsmeistaramótið í Katar. Hann neitar að auglýsa heilsuspillandi vörur.
Mbappé hefur tvisvar á mótinu fengið verðlaun sem maður leiksins en þau eru greidd af Budweiser og er framleiðandinn merktur á rauðan bikar sem bestu leikmenn hvers leiks fá. Mbappé hefur í bæði skiptin snúið bikarnum við fyrir myndatöku, til að sýna ekki merki Budweiser. Samkvæmt franska miðlinum L'Equipé er þetta hluti af hans ímyndarvinnu en sá franski er meðvitaður um hlutverk sitt sem fyrirmynd fyrir fjölda ungs fólks víða um heim og neitar því að samsama sig við alkóhól, ruslfæði eða veðmálafyrirtæki. Hann lenti í útistöðum við franska knattspyrnusambandið fyrr á þessu ári vegna auglýsingar landsliðsins fyrir skyndibitastaðinn KFC, auk fleiri fyrirtækja, af þessum sökum. Leikmenn sem hljóta verðlaunin sem maður leiksins eru skyldugir til að veita viðtal en áður hefur athygli verið vakin á því að franska knattspyrnusambandið hafi sætt sektum þar sem Mbappé neitaði að veita slík viðtöl. Hann sagði þá ætla að greiða slíkar sektir sjálfur. Mbappé hefur verið á meðal betri leikmanna mótsins og er markahæstur með fimm mörk, tveimur á undan næstu mönnum. Frakkland á titil að verja frá árinu 2018 og mætir Englandi í 8-liða úrslitum mótsins á laugardagskvöld.
HM 2022 í Katar Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Sjá meira