Þrír alvarlega slasaðir eftir að millihæð skemmtistaðar hrundi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 13. febrúar 2022 11:10 Hér má sjá mynd af vettvangi. Hal Þrettán manns slösuðust eftir að millihæð skemmtistaðar í austur-Lundúnum hrundi síðdegis í gær.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að viðbragðsaðilar hafi verið kallaðir til á barinn Two More Years í Hackney Wick um klukkan 16:50 að staðartíma í gær. Þrír eru taldir alvarlega slasaðir en tíu sluppu með minni háttar áverka. Á vettvangi þurfti slökkvilið að losa sjö manns undan braki hæðarinnar sem hafði hrunið. BBC hefur eftir einum bargesti sem var á millihæðinni þegar gólfið hrundi að rétt áður hefði mátt heyra drunur, líkt og um jarðskjálfta væri að ræða. „Það er ekki hægt að undirbúa sig fyrir svona lagað,“ sagði hann, og kvaðst heppinn að hafa getað komist sjálfur úr brakinu. Annar bargestur, sem sat á neðri hæð hússins, beint undir milliloftinu, segist hafa heyrt nokkurs konar brothljóð áður en ryk tók að falla úr loftinu. „Ég og félagi minn hlupum til hliðar og allt heila klabbið hrundi niður á nokkrum sekúndum.“ Hér má lesa umfjöllun BBC um atvikið.
England Bretland Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Fleiri fréttir Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Sjá meira