Listval opnaði sýningarrými í Hörpu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 6. desember 2021 15:00 Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen. Anna Kristín Óskarsdóttir Listval opnaði sýningarrými í Hörpu á laugardag og var fullt í rýminu alla helgina. Rými Listvals er á fyrstu hæð og sjást því litrík og falleg listaverk vel út um gluggana framan á Hörpu.
Starfsemi á jarðhæð Hörpu hefur tekið miklum breytingum síðastliðin misseri. Nýjasta viðbótin er þetta sýningarrými á vegum Listvals sem sérhæfir sig í myndlistarráðgjöf fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Á laugardag opnaði fyrsta sýning Listvals í Hörpu, Jólasýning Listvals, þar sem yfir 200 verk verða til sýnis og sölu eftir um 70 listamenn. „Ætlunin er að skapa rýminu fallega og fágaða umgjörð í formi myndlistarsýninga og gallerís og veita gestum eftirminnilega upplifun og innsýn í það sem íslensk myndlist hefur uppá að bjóða. Við viljum skapa þægilegt andrúmsloft og hughrif fyrir gesti og gangandi. Gestir geta fengið ráðgjöf við val á verkum, fræðst um íslenska myndlist og skoðað bækur um myndlist. Þá ætlum við einnig að vera með viðburðadagskrá með uppákomum þar sem nýjum útgáfum og verkum verður fagnað.“ segir Elísabet Alma Svendsen stofnandi og annar eigandi Listvals. Rými Listvals í Hörpu.Listval „Breytingarnar sem gerðar hafa verið á þessu afmælisári Hörpu miða allar að því að starfsemi og þjónusta í húsinu rími vel við kjarnastarfsemina og laði til sín sem fjölbreyttastan hóp gesta. Harpa er fjölsóttasta viðburðahús landsins og það er því mikið tilhlökkunarefni að fá Listval inn með nýja vídd í upplifun og þjónustu við gesti,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu. Opnunartími Listvals í Hörpu verður alla daga frá 10-18. Hægt er að fylgjast með Listval á instagram www.instagram.com/listval_ og skoða verk á www.listval.is.
Harpa Myndlist Reykjavík Tengdar fréttir Listval opnar nýtt sýningarrými á Granda Listval, nýtt sýningarrými opnar á Hólmaslóð 6, laugardaginn 26. júní milli 16 og18 en það eru þær Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf sem standa á bakvið Listval. 26. júní 2021 11:00 Leið til að færa myndlistina nær fólki Elísabet Alma Svendsen starfar við að aðstoða fólk og fyrirtæki við að velja myndlist. Hún fékk á dögunum þá hugmynd að kynna íslenska listamenn í gegnum Instagram. 31. mars 2020 13:00 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
Listval opnar nýtt sýningarrými á Granda Listval, nýtt sýningarrými opnar á Hólmaslóð 6, laugardaginn 26. júní milli 16 og18 en það eru þær Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf sem standa á bakvið Listval. 26. júní 2021 11:00
Leið til að færa myndlistina nær fólki Elísabet Alma Svendsen starfar við að aðstoða fólk og fyrirtæki við að velja myndlist. Hún fékk á dögunum þá hugmynd að kynna íslenska listamenn í gegnum Instagram. 31. mars 2020 13:00