Ástin virðist blómstra hjá Katrínu Tönju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. ágúst 2021 16:01 Brooks Laich bíður þess að smella kossi á Katrínu Tönju á Heimsleikunum um síðustu helgi. Svo virðist sem Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfitkempa og Brooks Laich, kanadískur fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, séu að slá sér upp. Katrín Tanja smellti kossi á Laich að loknum Heimsleikunum í crossfit á dögunum og nú njóta þau lífsins saman á Havaí.
Mbl greindi fyrst frá. Koss þeirra Katrínar Tönju og Laich að lokinni síðustu þrautinni í leikunum um liðna helgi. Leich var klæddur í bol merkum íslensku íþróttastjörnunni og greinilega stoltur af Katrínu þegar hún kom í mark. Augnablikið þar sem þau fagna saman árangri Katrínar Tönju má sjá á 5:51:00 að neðan. Ef rýnt er í samskipti þeirra Katrínar Tönju og Laich undanfarnar vikur á Instagram sést að verulega hlýtt er á milli þeirra. Katrín Tanja kallar Laich og hund hans Koda „bestu stráka í öllum heiminum“ og segist rosalega þakklát fyrir stuðninginn. Katrín og Laich dvelja saman á Four Seasons-hóteli á Hualalai á Havaí þar sem þau deildu myndum af morgunmat sínum í sól og blíðu. Katrín Tanja segir á Instagram að um langþráðan draum sé að ræða, að sækja Havaí heim. Katrín og Laich eiga það sameiginlegt að vera vinsæl á samfélagsmiðlinum Instagram. Katrín Tanja er með 1,8 milljónir fylgjenda og Laich 450 þúsund, þeirra á meðal Jennifer Aniston Hollywood-leikkonu með meiru. Laich var í sambandi með dansaranum og leikkonunni Julianne Hough frá 2014 til 2020 en þau skildu í nóvember í fyrra. Katrín Tanja var síðast í sambandi með bandaríska crossfit-kappanum Streat Hoerner. Katrín Tanja birti myndina að neðan á Instagram í dag og að sjálfsögðu var það Laich sem smellti af. View this post on Instagram A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja)
CrossFit Ástin og lífið Íslendingar erlendis Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira