Þrjú hlé í leikjum og engin innköst Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2020 18:00 Markmenn í yngstu flokkum mega nú rekja boltann af stað sjálfir í stað þess að taka hefðbundna markspyrnu. VÍSIR/VILHELM
Stjórn KSÍ hefur samþykkt breytingar á reglum um knattspyrnuleiki yngstu flokka, þar sem spilað er í 5, 7 og 8 manna liðum. Innspörk eða knattrak koma í stað innkasta og heimilt verður að rekja boltann úr markspyrnu. Breytingarnar á reglum um innköst og markspyrnur gilda fyrir leikmenn í 5. flokki og yngri. Munu markmenn nú geta rakið boltann af stað í staðinn fyrir að taka hefðbundna markspyrnu. Mótherjar skulu vera utan vítateigs þar til að boltinn er kominn í leik. Þegar boltinn fer út fyrir hliðarlínu skal framkvæmt innspark í stað innkasts áður, en óheimilt er að skora úr innsparki og ekki má spyrna boltanum hærra en í hnéhæð. Leikmenn geta einnig rakið boltann úr kyrrstöðu af hliðarlínu, í stað þess að taka innspark, og er þeim heimilt að skora eftir að hafa rakið boltann af stað. Mótherjar verða að standa að minnsta kosti tveimur metrum frá spyrnustaðnum á hliðarlínunni. Þá hafa verið gerðar breytingar á leiktíma í 5. flokki. Leikir verða nú 2x30 mínútur í stað 2x20 mínútna. Leikhlé verður eftir sem áður fimm mínútur, en auk þess verður tveggja mínútna hlé um miðjan fyrri hálfleik og tveggja mínútna hlé um miðjan seinni hálfleik. Reglubreytingarnar ríma vel við málflutning Arnars Þórs Viðarssonar, sviðsstjóra knattspyrnusviðs KSÍ og þjálfara U21-landsliðs karla, enda eru breytingarnar gerðar að tillögu knattspyrnusviðs. Hefur Arnar til að mynda bent á að með því að hafa fleiri en eitt leikhlé geti þjálfarar átt auðveldara með að þróa leik sinna leikmanna.
Íslenski boltinn Krakkar KSÍ Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira