Lampard elskar að hlusta á Roy Keane en ætlar að sanna fyrir honum að hann hafi rangt fyrir sér Anton Ingi Leifsson skrifar 21. janúar 2020 14:30 Lampard á blaðamannafundi gærdagsins. vísir/getty
Frank Lampard, stjóri Chelsea, er staðráðinn í því að sanna fyrir Roy Keane og öðrum spekingum að hans sé starfi sínu vaxinn hjá Chelsea. Roy Keane, spekingur Sky Sports, sagði um helgina að farið væri silkihönskum um Frank Lampard. Hann ber meðal annars saman Lampard og Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United. Írinn sagði að allir vildu Solskjær burt á meðan flestir töluðu um Lampard eins og frábæran stjóra en benti á að Chelsea hafi tapað átta leikjum. Lampard segist hafa horft á þetta en kippir sér að öðru leyti ekki mikið upp við þetta. „Ég horfði á þetta. Þetta var gott sjónvarp er það ekki? Þetta stingur í eyrun. Ég held að bara það að ég sé enskur hjálpi mér ekki að sleppa við gagnrýni,“ sagði Lampard. Frank Lampard admits he is out to silence doubters like Roy Keane by making a success of his Chelsea tenure.— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 21, 2020 „Í hreinskilni sagt heyrði ég mikið af gagnrýnisröddum þegar ég tók við því ég er ungur, enskur og hafði bara þjálfað í eitt ár hjá Derby.“ „Ég elska að hlusta á Roy tala um fótbolta því hann er svo ástríðufullur en aftur að efninu þá held ég að ég fái ekki neinn slaka fyrir það að vera enskur.“ „Fullt af fólki vill setja spurningarmerki við fólk sem er ekki með mikla reynslu og það er mitt að gera eins vel og ég get hérna til þess að þagga niður í gagnrýnisröddum,“ sagði Lampard. Chelsea mætir Arsenal í grannaslag á Stamford Bridge í dag. Chelsea tapaði um helgina fyrir Newcastle en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 39 stig. Arsenal er tíu stigum á eftir grönnunum.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira