Stuðningsmaður Liverpool segir eitthvað bogið við ensku deildina Anton Ingi Leifsson skrifar 13. janúar 2020 09:30 Klopp og Henderson fagna með stuðningsmönnum Liverpool. vísir/getty
Liverpool er með fjórtán stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar í enska boltanum og á einn leik til góða. Þrátt fyrir að flestir stuðningsmenn Liverpool séu hoppandi kátir með forystuna eru það ekki allir. Einn stuðningsmaður félagsins hringdi inn á BBC 5 í gær þar sem farið var yfir enska boltann og setti spurningarmerki við getu annara liða deildarinnar og rúmlega það. „Eðlilega er ég ánægður með Liverpool. Hvernig ætti ég ekki að vera það?“ sagði stuðningsmaðurinn. „En það sem ég ætlaði að segja er að það er eitthvað bogið við ensku deildina. Hin liðin eru glötuð. Mér finnst að deildin sé ekki að standa undir væntingum.“ „Hvar er Arsenal? Hvar er Chelsea? Hvar eru öll þessi félög?“ "There’s something wrong in the Premier League - the other teams are rubbish” This #LFC fan is disappointed by the lack of competition for the title this season... They're just the points clear at the top of the table #BBC606pic.twitter.com/JjV5wPH5jc— BBC 5 Live Sport (@5liveSport) January 11, 2020 „Manchester City og Liverpool eru að standa sig vel. City hefur náð í 100 stig á síðustu tveimur leiktíðum. Ekkert lið ætti að ná því. Liverpool ætti ekki að ná 97 stigum og ekki vinna deildina.“ Stuðningsmaðurinn hélt áfram og gagnrýndi fullt af liðum sem væru að borga leikmönnum sínum fjúlgur fjár í hverri einustu viku og liðin gætu ekkert. Innslagið áhugaverða má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Sjá meira