Kompany gæti snúið aftur til Man. City Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2020 09:45 Vincent Kompany kvaddi Manchester City sem Englandsmeistari. vísir/getty
Vincent Kompany yfirgaf Manchester City síðasta sumar eftir ellefu tímabil hjá félaginu en hann gæti snúið aftur sem aðstoðarþjálfari. Þetta segir Sky Sports. Kompany hélt heim til Belgíu sem Englandsmeistari í fyrra og gerðist spilandi aðstoðarþjálfari Anderlecht. Samningur hans við Anderlecht, sem hafnaði í 8. sæti belgísku úrvalsdeildarinnar á styttri, nýafstaðinni leiktíð, gildir til sumarsins 2022. Hann gæti hins vegar verið á leið aftur til City. Samkvæmt Sky Sports hefur City „opnað dyrnar“ fyrir Kompany til að hann geti snúið aftur til félagsins. Hinn 34 ára gamli miðvörður á að hafa rætt við Pep Guardiola og þó að ekkert tilboð hafi verið lagt fram í kjölfarið var honum gert ljóst að hann væri velkominn aftur. Manchester City missti aðstoðarþjálfara í desember þegar Mikel Arteta tók við Arsenal. City mætir einmitt Arsenal 17. júní þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst að nýju eftir hléið vegna kórónuveirufaraldursins. Kompany varð fjórum sinnum Englandsmeistari með City, vann tvo bikarmeistaratitla og fjóra deildarbikarmeistaratitla, eftir að hafa komið frá Hamburg árið 2008.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira