Mourinho segist hafa átt skilið að vera rekinn frá Man. Utd en segir liðið í ár verra en í fyrra Anton Ingi Leifsson skrifar 23. september 2019 08:30 Mourinho fór um víðan völl í gær. vísir/getty
Jose Mourinho segir að hann hafi átt skilið að vera rekinn frá félaginu í desember 2018 en hann var einn spekinga Sky Sports yfir leik Manchester United og West Ham í gær. United tapaði leiknum 2-0 og er því tíu stigum á eftir toppliði Liverpool er einungis sex umferðir eru búnar en þung ský eru yfir rauða hluta Manchester-borgar þessar vikurnar. „Ég er ekki rétti maðurinn til að svara því,“ sagði Mourinho þegar hann var spurður út í hver helstu vandræði liðsins væru. „Þeir eru langt á eftir og það er erfitt fyrir mig að svara því.“ „Ég var þarna í tvö tímabil og þá fann ég fullt af jákvæðum hlutum gerast og við vorum á leiðinni í rétta átt en svo kom þriðja tímabilið sem var augljóslega ekki nægilega gott.“Jose Mourinho says he deserved to be sacked as Man Utd bosshttps://t.co/NKXPfSqesEpic.twitter.com/9pUT6TDebl — Mirror Football (@MirrorFootball) September 23, 2019 Mourinho var rekinn í desembermánuði 2018 og við tók Ole Gunnar Solskjær fyrst sem bráðabirgðarstjóri og svo fékk hann fastráðningu. „Ég var rekinn og átti það líklega skilið því ég var ábyrgur sem stjóri liðsins en það skelfilega er að þeir eru verri nú en áður. Það er leiðinlegt. Sumir halda kannski að ég njóti þess en ég geri það ekki.“ „Það er fólk hjá félaginu sem ég elska. Ég ber mikla virðingu fyrir stuðningsmönnunum en ég sé ekki neitt gerast þarna og ég held að þeir verði í miklum vandræðum með að komast ekki bara inn í topp fjóra heldur topp sex.“ „Ég held að þetta lið sé verra en liðið á síðustu leiktíð,“ sagði bálhvass Mourinho að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira