Eftirlegukindur í kollinum Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 7. maí 2019 07:00 Þegar ég var ungur, með Bubba-söngva í sálinni, og gekk um götur Amsterdam með gítarinn á öxlinni var ekkert jafn viðeigandi og dramatískt húðflúr á upphandlegginn. Mér fannst ég líka vera orðinn gæi í hærri gæðaflokki þegar ég kom með litríkt djásnið heim. Loks gat ég látið sjá mig með bera handleggi í námunda við Bjössa frænda. En svo leið tíminn og ég breyttist en húðflúrið ekki, nema að það varð aðeins fölara. Það kostaði mig álitshnekki í Grikklandi á þeim tímum sem skrautleðraðir menn voru álitnir gamlir tukthúslimir þar sem húðflúrun fór nánast einungis fram í fangelsum þar í landi. Missti ég marga sénsa af þessum völdum. Og enn hélt lífið áfram að breyta mér úr takti við myndina atarna og nú er svo komið að eiturnaðran, og ég tala nú ekki um rósin, eru einsog einhver óskapnaður á mér þá ósjaldan að maður brettir upp ermar. En húðflúr er nú bara skraut, það er verra þegar við innprentum í koll okkar hugmyndir sem, rétt einsog húðflúrið, breytast ekkert sama hvað tímans tönn tyggur þær. Í kalda stríðinu náðu Bandaríkin að móta þá heimsmynd að þau væru boðberar frelsis og ættu sökum máttar síns og lýðræðishneigðar að koma skikk á veröld vora. Tíminn hefur leitt í ljós hvers konar valdhafar þeir eru en engu að síður ráða þeir því nú að Íran er hel en Sádi-Arabía til heilla, uppljóstrarar eru glæpamenn meðan þeir sem frömdu glæpina sem ljóstrað var upp um eru heiðvirðir menn, sem þó úthella blóði hvenær sem hagsmunir krefjast. Þó menn lúti ennþá þessari heimsmynd er hún rotin og mannkyni til álíka sóma og eiturnaðran og rósin frá Amsterdam á upphandlegg miðaldra pistlahöfundar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun