Fannst á lífi 87 dögum eftir morðið á foreldrunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. janúar 2019 07:41 Jayme Closs. Mynd/lögreglan í Barron-sýslu
Jayme Closs, þrettán ára stúlka frá Wisconsinríki í Bandaríkjunum, fannst á lífi í gærkvöldi eftir að hafa verið saknað síðan í október. Hún hvarf sama dag og foreldrar hennar fundust myrtir á heimili sínu. Lögregla í Wisconsin greinir frá því að einstaklingur grunaður um aðild að málinu hafi verið handtekinn. Í frétt BBC er haft eftir fjölmiðlum vestanhafs að Closs hafi fundist í grennd við bæinn Gordon í Wisconsin en svo virðist sem henni hafi verið haldið í húsi á svipuðum slóðum. Ekki hefur fengist staðfest hvort Closs hafi verið rænt eða hvort hún hafi verið viðriðin morðið á foreldrum sínum. Haft er eftir kennara við skóla á svæðinu að nágranni hafi gengið fram á Closs á fimmtudag. Þá hafi stúlkan verið afar grönn, skítug og klædd of stórum skóm. Foreldrar Closs, 56 og 46 ára, fundust skotnir til bana í október síðastliðnum. Þegar lögregla kom á vettvang var Closs horfin og hvorki bólaði á morðingjanum né skotvopninu. Boðað hefur verið til blaðamannafundar vegna málsins í Wisconsin í dag.#FBIMilwaukee needs your help, as the search continues to bring home 13 year old Jayme Closs, now missing & endangered after her parents were found dead in their home in Barron, WI early this week. Call the tip line 1-855-744-3879.#FindJayme pic.twitter.com/rNELlQKJb6— FBI Milwaukee (@FBIMilwaukee) October 17, 2018
Bandaríkin Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira