Hljóp 400 kílómetra í Gobi eyðimörkinni: „Geta þetta allir“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. nóvember 2018 10:30 Elísabet Margeirsdóttir hljóp 400 kílómetra í Gobi-eyðimörkinni.
Ofurhlauparinn Elísabet Margeirsdóttir er þegar byrjuð að huga að næstu áskorun eftir að hafa lokið Ultra Gobi 400 hlaupinu í október, þar sem hún hljóp rúma 400 kílómetra á aðeins fjórum sólarhringum. Landsmenn fylgdust grannt með framvindu mála hjá Elísabetu meðan á hlaupinu stóð, en hún segir þennan mikla áhuga í raun hafa komið sér á óvart. Á allri þessari leið kom aldrei upp í hugann að gefast upp, en hún viðurkennir þó að vissir kaflar hafi tekið mikið á – þá sérstaklega þegar hlaupið var yfir skarð í um fjögur þúsund metra hæð. „Þetta er strategía og þú verður að hafa eitthvað plan. Þetta er rosalega löng vegalengd og það er eiginlega ómögulegt að gera þetta án þess að hvíla sig eitthvað og sofa eitthvað smá,“ segir Elísabet í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.Allt frosið „Ég var svo flott að fara yfir hæsta punktinn yfir hánóttu. Það var rosalega kalt í þessari hæð og þá t.d. fraus allt vatnið í brúsanum. Allur maturinn og orkan sem ég var með var orðin svo grjóthörð að það var ekkert hægt að borða,“ segir Elísabet og bætir við að tíu stórar hvíldarstöðvar hafi verið á leiðinni þar sem hún gat aðeins kastað mæðinni og gert það sem hún þurfti að gera, eins og að skipta um föt og fleira.Hlaupið var oft á tíðum mjög erfitt og reyndi mikið á andlega.Kom aldrei tími þar sem hana langaði bara að gefast upp?„Alls ekki, sem er pínulítið skrýtið því ég hef oft upplifað þannig í hlaupum. Í þessu var undirbúningurinn það góður og ég hafði sett heilmikla pressu á sjálfan mig. Þetta var stórt markmið og ég ætlaði að ná þessu. Þessar erfiðu stundir gera í raun og veru hlaupið, þetta snýst um að komast í gegnum þessar erfiðu stundir.“ Þrátt fyrir að hvíldarstöðvarnar hafi verið tíu þá svaf Elísabet aðeins í rúmar fjórar klukkustundir á leiðinni. „Ef þú ætlar að stoppa þá er best að vera í sitjandi eða liggjandi stöðu til að fá sem mest út úr hvíldinni. Það var heilmikið af starfsfólki á stöðunum og maður reyndi að nýta sér það sem mest. Svo komu upp nokkur skipti þar sem ég fór inn í svefnpoka og reyndi að detta út í hálftíma.“Hvað borðar maður á fjögurra daga stanslausu hlaupi? „Ég þurfti að koma með allan mat sjálf að heiman og ég var með tíu kíló af orku með mér. Ég borðaði bara brot af því, af því að matarlystin hún minnkar rosalega við svona áreynslu. Maður reynir að gera þetta eftir bókinni en í svona aðstæðum gerir maður bara eins og maður getur. Ég var fyrst og fremst að borða svona hrísgrjónarétti, þurrmat, kanilsnúða, kex, súkkulaði, svona allt þetta holla og góða.“ Umhverfið í Gobi eyðimörkinni er harðneskjulegt, breytingar miklar og hitasveiflurnar gríðarlegar. Sjóðheitt á daginn og ískalt á nóttinni. „Ég var búin að sjá myndir og reyndi að ímynda mér þetta eins og ég gat og sá mig fyrir að hlaupa þetta alveg frá byrjun til enda. Þetta var rosalega flott og rosalega ólíkt öllu sem ég hef séð. Það gerði þetta líka ofboðslega skemmtilegt. Það er allt annað en að vera hlaupa sama hringinn kannski fjörutíu sinnum.“Þarft ekki að vera ofurmenni Þrátt fyrir að hafa eytt síðustu vikum að einhverju leyti í að ná sér niður eftir afrekið er hún strax byrjuð að huga að næstu áskorun, einhverju jafnvel stærra en Gobi-hlaupinu. Elísabet segir mikið fagnaðarefni hve mikil vitundarvakning hafi orðið um hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl undanfarið, en ítrekar mikilvægi þess að fara ekki of hratt af stað. Aftur á móti þvertekur hún fyrir að ofurhlaup á borð við það sem hún lauk í Kína sé aðeins á færi einhvers konar ofurmenna. „Ef fólk vill gera svona hluti og fer réttu leiðinni að því þá geta þetta allir. Þetta snýst um rétta markmiðasetningu. Þetta tekur tíma að komast á þann stað að finnast eðlilegt að fara í fjögur hundruð kílómetra hlaup.“ Í dag er hún með mörg járn í eldinum, búin að ná sér niður eftir hlaupið og farin að huga að næstu áskorun. Auk þess er hún aðjúnkt í næringarfræði við Háskóli Íslands og heldur fyrirlestra þar sem hún hvetur fólk til dáða, hver sem markmiðin eru. Rætt var við Elísabetu í Íslandi í dag í gærkvöldi.
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira