Fjórar systur á leið í afmæli þeirrar yngstu dóu Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2018 11:00 Lögreglan hefur ekki sagt hve hratt bílnum hafi verið ekið né hvort að farþegar limmósínunnar hafi verið í bílbeltum. AP/Hans Pennink
Íbúar á svæðinu þar sem tuttugu manns dóu í umferðarslysi í New York ríki í gær hafa lengi kvartað yfir veginum þar sem slysið varð. Átján manns sem voru í limmósínu á leið í afmæli dóu þegar bílnum var ekið á kyrrstæðan bíl við verslun. Tveir dóu þegar þeir urðu fyrir limmósínunni á bílastæðinu við verslunina. Limmósínunni var ekið yfir stöðvunarskyldu en lögreglan hefur ekki sagt hve hratt bílnum hafi verið ekið né hvort að farþegar limmósínunnar hafi verið í bílbeltum. Í limmósínunni voru meðal annars fjórar systur og vinir þeirra. Þau voru á leið í afmælisveislu yngstu systurinnar en hópurinn var að halda upp á þrítugsafmæli hennar.Hér má sjá hvernig aðstæður á slysstaðnum eru. Limmósínunni var ekið niður langa brekku í átt að umræddum gatnamótum. Smellið á rauðu hringina til að fá frekari upplýsingar. Talið er að um mannskæðasta bílsslys Bandaríkjanna frá árinu 2005 sé að ræða, samkvæmt AP fréttaveitunni. Framkvæmdastjóri verslunarinnar sem slysið varð við segir að gatnamótin hafi verið endurgerð árið 2008, í kjölfar banaslyss. Síðan þá hafi þó fjölmörg slys orðið á þeim. Þá veit hún til þess að þrír vöruflutningabílar hafi farið yfir gatnamótin á miklum hraða og á túnið við verslunina. „Við höfum verið að kalla eftir breytingum í mörg ár,“ sagði Jessica Kirby.Rætt við frænku systranna. Blaðamannafundur lögreglu
Bandaríkin Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Sjá meira