Bein útsending: Söfnunarþáttur Stöðvar 2 og Landsbjargar Stefán Árni Pálsson skrifar 21. september 2018 18:45
Stöð 2 og Landsbjörg standa fyrir söfnunarþætti í beinni útsendingu í kvöld en Landsbjörg er í kynningar- og fjáröflunarátaki undir yfirskriftinni: „Þú getur alltaf treyst á okkur – nú treystum við á þig.“ Söfnunarþátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 næstkomandi föstudag. Útsendingin hefst klukkan 19.25 og stendur fram á kvöldið. Söfnunarsíminn er 570-5959. Markmiðið með þættinum er að varpa ljósi á fjölbreytt og krefjandi verkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Sjálfboðaliðar eru til taks um allt land ef eitthvað bregður út af – allan sólarhringinn, alla daga ársins. Allir hafa þeir gengið í gegnum stranga þjálfun sem tryggir rétt og fumlaus viðbrögð sem geta skipt sköpum á ögurstundu. Tækjabúnaður og sérútbúinn bíla- og bátakostur er einnig forsenda þess að náist í tæka tíð til fólks í vanda. Þá þarf að tryggja samhæfð vinnubrögð og viðhalda þekkingu í hæsta gæðaflokki. Allt kostar þetta augljóslega mikla fjármuni. Boðið er upp á bland af áhugaverðum fróðleik og skemmtilegum innslögum úr starfi björgunarsveita landsins. Markmið útsendingarinnar er að safna bakvörðum sem styrkja starf félagsins með mánaðarlegum framlögum. Kynnar eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Guðmundur Benediktsson og Hersir Aron Ólafsson. Eins og áður segir hefst útsendingin klukkan 19:25 og má sjá hana hér á Vísi.
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Sjá meira