Spá allt að sjö metra sjávarflóði á Filippseyjum vegna Mangkhut Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2018 10:04 Íbúar á norðanverðri Luzon-eyju, aðaleyju Filippseyja, búa sig nú undir komu fellibylsins Mangkhut. Vísir/EPA
Fellibylurinn Mangkhut sem stefnir á norðuroddar Filippseyja og sunnavert meginland Asíu hefur færst í aukana á leið sinni að landi. Um fimm milljónir manna búa á svæðum sem bylurinn fer beint yfir. Þar er spáð allt að sjö metra háu sjávarflóði og vindhraða upp á 70 metra á sekúndu.Breska ríkisútvarpið BBC segir að gert sé ráð fyrir að Mangkhut, sem er þekktur sem Ompong á Filippseyjum, gangi á land á Luzon-eyju fyrir morgundaginn. Flugferðum hefur verið aflýst, skólum lokað og herinn settur í viðbragðsstöðu. Mangkhut er nú um 900 kílómetrar að þvermáli og hefur þegar valdið usla í Gvam og á Norður- Maríönnueyjum. Varað er við því að úrhellisrigning sem fylgi fellibylnum geti sett af stað aurskriður og skyndiflóð. Yfirvöld í Kína hafa einnig gefið út viðvaranir vegna komu fellibylsins. Búist er við því að hann skelli þar á síðla dags á sunnudag eða snemma morguns á mánudag.
Tengdar fréttir Milljónir Filippseyinga í vegi fellibylsins Mangkhuts Veðurfræðingar spá allt að sjö metra háu sjávarflóði þegar stærsti fellibylur ársins á þessum slóðum nálgast land á Filippseyjum. 13. september 2018 10:16 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Sjá meira
Milljónir Filippseyinga í vegi fellibylsins Mangkhuts Veðurfræðingar spá allt að sjö metra háu sjávarflóði þegar stærsti fellibylur ársins á þessum slóðum nálgast land á Filippseyjum. 13. september 2018 10:16