Klaufabárðarnir í ferðamannaflóðbylgjunni Benedikt Bóas skrifar 18. september 2018 08:00 Ýmsar furðulegar sögur af ferðamönnum hafa ratað í fréttirnar undanfarin ár.
Ísland er troðfullt af ferðamönnum. Miðað við fjöldann er óumflýjanlegt að einn og einn vitleysingur slæðist með. Fréttablaðið tók saman nokkrar fréttir af ferðamönnum sem vissu ekki alveg hvernig þeir áttu að haga sér hér á landi en í gær bárust fréttir af ferðalöngum sem gáðu ekki að sér við Gróttuvita og þurfti að bjarga þegar flæddi að.Kindin sem varð hvítabjörnÞað varð uppi fótur og fit árið 2015 þegar spænskur ferðamaður kom móður og másandi að þjóðgarðsverði og sagðist hafa séð hvítabjörn í Jökulsárgljúfrum, miðja vegu milli Hólmatungna og Vesturdals. Landhelgisgæslan flaug yfir svæðið en enginn hvítabjörn eða ummerki um hann fundust við leitina. Yfirlögregluþjónn sagði við mbl.is að trúlega hefði þetta verið kind eða snjóskafl, já eða hvort tveggja.GPS leiddi hann ?til Siglufjarðar Bandarískur ferðamaður sem ætlaði á Hótel Frón á Laugavegi í Reykjavík eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli árið 2016 endaði á Laugarvegi á Siglufirði vegna misskilnings við notkun á GPS-tæki. Hann var heldur vandræðalegur þegar hann bankaði upp á hjá Sigurlínu Káradóttur, sem býr við Laugarveg á Siglufirði, og spurði hvort Hótel Frón væri í grenndinni.Á spariskóm í vetrarfærð Um 40 bílar festust í ófærð á Reynisfjalli árið 2016. Þegar fréttir bárust af fjallinu kom í ljós að flestir bílanna voru á sumardekkjum og ökumennirnir á lakkskónum. Orri Örvarsson, formaður björgunarsveitarinnar Víkverja, sagði í viðtali við RÚV, að fólk væri greinilega ekki að „fara í einhvern vetur“Hraðakstur og hringtorg Reglulega berast fréttir frá lögreglu af ofurölvi ferðamönnum sem vita hvorki í þennan heim né annan og þurfa að gista fangageymslur þar til víman rennur af þeim. Þá berast reglulega fregnir af ferðamönnum sem eru að drífa sig og hafa ekki hugmynd um að hér sé aðeins hámarkshraði upp á 90 km/klst. Þannig voru tveir teknir í síðustu viku á yfir 150 km hraða á Reykjanesbraut. Sá sem nálgaðist 160 þurfti að greiða 230 þúsund krónur í sekt. Þá kom í ljós við rannsókn Vegagerðarinnar árið 2016 að erlendir ökumenn komu við sögu í 22% þeirra slysa sem urðu á hringtorgum.Gps leiddi hann til Siglufjarðar Bandarískur ferðamaður sem ætlaði á Hótel Frón á Laugavegi í Reykjavík eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli árið 2016 endaði á Laugarvegi á Siglufirði vegna misskilnings við notkun á GPS-tæki. Hann var heldur vandræðalegur þegar hann bankaði upp á hjá Sigurlínu Káradóttur, sem býr við Laugarveg á Siglufirði, og spurði hvort Hótel Frón væri í grenndinni.Joey á Íslandi Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í upphafi árs greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið, líkt og Joey Tribbiani úr þáttaröðinni Friends. Honum var vísað frá og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væri svo dúðaður. Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo að lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.Horfðu upp en ekki niður Á sunnudagsnótt var tilkynnt um hóp erlendra ferðamanna sem festist úti í Gróttu eftir að flæddi að. Samkvæmt tilkynningunni var fólkið að horfa á norðurljósin. Björgunarsveit kom með bát og ferjaði fólkið í land.Á spariskóm ?í vetrarfærð Um 40 bílar festust í ófærð á Reynisfjalli árið 2016. Þegar fréttir bárust af fjallinu kom í ljós að flestir bílanna voru á sumardekkjum og ökumennirnir á lakkskónum. Orri Örvarsson, formaður björgunarsveitarinnar Víkverja, sagði í viðtali við RÚV, að fólk væri greinilega ekki að „fara í einhvern vetur“.Joey á Íslandi Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í upphafi árs greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið, líkt og Joey Tribbiani úr þáttaröðinni Friends. Honum var vísað frá og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væri svo dúðaður. Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo að lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.Bannað að leggja Erlendur ferðamaður sem var að fara í gegnum vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í maí reyndist vera með íslenskt umferðarskilti í fórum sínum. Um var að ræða skilti sem gaf til kynna að bifreiðastöður væru bannaðar. Í samtali við lögreglumann úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum kvaðst ferðalangurinn hafa keypt skiltið af farandsala í vegkanti milli Hafnar í Hornafirði og Víkur í Mýrdal og greitt fyrir það 3.000 krónur. Sá fyrrnefndi afsalaði sér skiltinu sem fært var í áhaldahús Reykjanesbæjar þar sem það unir hag sínum vel.Bannað að leggja Erlendur ferðamaður sem var að fara í gegnum vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í maí reyndist vera með íslenskt umferðarskilti í fórum sínum. Um var að ræða skilti sem gaf til kynna að bifreiðastöður væru bannaðar. Í samtali við lögreglumann úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum kvaðst ferðalangurinn hafa keypt skiltið af farandsala í vegkanti milli Hafnar í Hornafirði og Víkur í Mýrdal og greitt fyrir það 3.000 krónur. Sá fyrrnefndi afsalaði sér skiltinu sem fært var í áhaldahús Reykjanesbæjar þar sem það unir hag sínum vel.Horfðu upp en ?ekki niður Á sunnudagsnótt var tilkynnt um hóp erlendra ferðamanna sem festist úti í Gróttu eftir að flæddi að. Samkvæmt tilkynningunni var fólkið að horfa á norðurljósin. Björgunarsveit kom með bát og ferjaði fólkið í land.Hraðakstur og hringtorgReglulega berast fréttir frá lögreglu af ofurölvi ferðamönnum sem vita hvorki í þennan heim né annan og þurfa að gista fangageymslur þar til víman rennur af þeim. Þá berast reglulega fregnir af ferðamönnum sem eru að drífa sig og hafa ekki hugmynd um að hér sé aðeins hámarkshraði upp á 90 km/klst. Þannig voru tveir teknir í síðustu viku á yfir 150 km hraða á Reykjanesbraut. Sá sem nálgaðist 160 þurfti að greiða 230 þúsund krónur í sekt. Þá kom í ljós við rannsókn Vegagerðarinnar árið 2016 að erlendir ökumenn komu við sögu í 22% þeirra slysa sem urðu á hringtorgum
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Ferðamenn festust í Gróttu eftir að flæddi að Lögregla þurfti að hafa afskipti af fjölda ökumanna sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt. 17. september 2018 08:45 Ævintýri Noels komin í heimsfréttirnar BBC greinir frá hremmingum bandaríska ferðalangsins. 3. febrúar 2016 11:54 Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira
Ferðamenn festust í Gróttu eftir að flæddi að Lögregla þurfti að hafa afskipti af fjölda ökumanna sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt. 17. september 2018 08:45
Ævintýri Noels komin í heimsfréttirnar BBC greinir frá hremmingum bandaríska ferðalangsins. 3. febrúar 2016 11:54