Dularfulla konan sem hringdi dyrabjöllum að næturlagi fundin Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. ágúst 2018 08:27 Skjáskot úr myndbandinu sem fór eins og eldur í sinu um vefinn. Skjáskot/FACEBOOK
Dularfulla konan sem sást hringja dyrabjöllum að næturlagi með ólar um úlnliðina er fundin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Texas fannst kærasti hennar látinn í vikunni eftir að hafa framið sjálfsvíg. Lögregla óskaði eftir upplýsingum um konuna á sunnudag en ferðir hennar aðfaranótt 24. ágúst síðastliðinn náðust á öryggismyndavél. Í myndbandinu, sem lögregla í Montgomery-sýslu í Texas birti á Facebook-síðu sinni, sést konan hringja dyrabjöllu viðkomandi húss, með ólar um úlnliðina og berfætt í stuttermabol einum fata. Hún sást svo hringja dyrabjöllum annarra húsa á svæðinu en lét sig svo hverfa. Málið vakti mikla athygli, og jafnvel óhug þar eð ólarnar um úlnliði konunnar þóttu benda til þess að eitthvað misjafnt hefði átt sér stað. Nú er konan, sem er 32 ára, hins vegar fundin heil á húfi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu dvelur hún hjá fjölskyldu sinni. Lögregla segir konuna vera þolanda heimilisofbeldis og verður hún því ekki nafngreind að svo stöddu. Þá fannst kærasti hennar látinn í vikunni eftir að hafa framið sjálfsvíg 49 ára gamall.Hér að neðan má sjá myndband af blaðamannafundi lögreglu í Montgomery-sýslu vegna málsins. Þar fyrir neðan má svo sjá myndbandið sem náðist af konunni.
Bandaríkin Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Sjá meira