Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu jókst milli ára Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar 22. júlí 2018 20:21 Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu jókst milli ára. Vísir/Stefán
Bráðabirgðaniðurstöður ferðaþjónustureikninga gefa til kynna að hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu hafi numið 8,6% árið 2017. Þetta er aukning frá fyrri árum en til samanburðar nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu 8,1% árið 2016 og 6,2% árið 2015. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þessi aukning í hlutdeild af landsframleiðslu var nokkuð minni árið 2017 en árin 2015 og 2016 en sambærileg því sem hún var á árunum 2012 til 2014. Ferðaþjónustureikningar eru hliðarreikningar þjóðhagsreikninga og er þeim ætlað að leggja mat á hlut ferðaþjónustunnar í hagkerfinu og þroun hennar sem atvinnugrein. Komur erlendra ferðamanna hingað til lands voru alls 2.690.465 árið 2017 sem er 25,4% aukning frá fyrra ári. Flestir ferðamenn sem koma til landsins eru gistifarþegar sem koma með millilandaflugi. Gistifarþegum fjölgaði um 24,1% sem er mun meiri aukning en í fjölda gistinátta en þeim fjölgaði um 7,3%.Útgjöld erlendra ferðamanna meiri Heildarútgjöld erlendra ferðamanna námu 376,6 milljörðum króna árið 2017 en þau námu 346 milljörðum króna árið 2016. Tæpur fjórðungur útgjaldanna kom til vegna kaupa á gistiþjónustu eða 85,6 milljarðar króna. Eins greiddu erlendir ferðamenn 71,4 milljarða til ferðaskipuleggjenda og ferðaskrifstofa og 65 milljarða til innlendra flugfélaga bæði vegna fargjalda hingað til lands og innanlands.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira