Blaðamenn ræða ekki við Aron Einar fyrr en á morgun Tómas Þór Þórðarson í Kabardinka skrifar 14. júní 2018 09:34 Aron Einar Gunnarsson svarar því á morgun hvort hann sé klár í slaginn. vísir/vilhelm
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, var ekki einn af leikmönnum landsliðsins sem mætti í viðtöl á æfingunni í dag en fjölmiðlar biðu hvað spenntastir eftir að heyra hver staðan sé á miðjumanninum. Leikmenn með númerin 16-23 áttu að mæta í viðtöl og bjuggust því fjölmiðlar við því að ná tali af landsliðsfyrirliðanum sem er númer 17 en hann var ekki sendur. Ástæðan er sú að Aron mun sitja opinberan blaðamannafund FIFA ásamt Heimi Hallgrímssyni á Spartak-vellinum í Moskvu á morgun en daginn fyrir leik er alltaf blaðmannafundur með þjálfara og einum leikmanni. Aron Einar hefur verið meiddur undanfarnar vikur og tók engan þátt í vináttulandsleikjunum á móti Noregi og Gana. Hann hefur verið að koma til og æft vel en mikið einn ásamt sjúkraþjálfara. Aron var einnig tæpur vegna meiðsla á EM 2016 fyrir tveimur árum en beit þá á jaxlinn og byrjaði alla leikina. Það þarf vafalítið mikið til svo hann spili ekki á móti Argentínu.Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Arnór Ingvi: Fiðringurinn magnast með hverjum deginum Það var létt yfir Suðurnesjamanninum Arnóri Ingva Traustasyni fyrir æfingu landsliðsins í morgun. 14. júní 2018 09:30 HM í dag: Allir vildu fá eiginhandaráritun frá Bödda Hitinn í Kabardinka í dag er óbærilegur og það voru ansi sveittir menn að taka upp HM í dag þennan morguninn. 14. júní 2018 09:00 Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid - Real Sociedad | Orri heimsækir Madríd Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Sjá meira
Arnór Ingvi: Fiðringurinn magnast með hverjum deginum Það var létt yfir Suðurnesjamanninum Arnóri Ingva Traustasyni fyrir æfingu landsliðsins í morgun. 14. júní 2018 09:30
HM í dag: Allir vildu fá eiginhandaráritun frá Bödda Hitinn í Kabardinka í dag er óbærilegur og það voru ansi sveittir menn að taka upp HM í dag þennan morguninn. 14. júní 2018 09:00