Nína safnar skrautlegum myndum úr íslenskum fasteignaauglýsingum Stefán Árni Pálsson skrifar 9. febrúar 2018 16:30 Sumar myndirnar eru einfaldlega óskiljanlegar. „
Það gerðist eiginlega bara alveg óvart, var á sínum tíma að skoða mikið af fasteignum og þessir gullmolar komu svo inn á milli sem ég bara varð að eigna mér á tölvuna, núna pæli ég voða lítið í fasteignum og er eiginlega bara að skoða þær upp á myndirnar,“ segir Nína Harra sem hefur safnað myndum úr fasteignaauglýsingum í nokkur ár. Myndaalbúmið er orðið nokkuð stórt og þegar þessi frétt er skrifuð eru 522 myndir til sýnis. Nína býr í Gautaborg þar sem hún er í meistaranámi í textíl, en hún er fædd árið 1992. Hún segir að það hafi ekki beint komið henni á óvart að svona myndir væru að finna í fasteignaauglýsingum hér á landi. „Maður hefur séð svipuð svona albúm á netinu hér og þar frá hvaðan sem er í heiminum þannig að sjá svona myndir kom svo sem ekki á óvart. Annars er ég mikið að velja myndir sem mér finnst bara persónulega flott rými og myndi vilja búa í, svo eru mörg rými alveg þvílíkt ljót en svo afskaplega vel ljósmynduð.“Einhver mynd sem er í sérstöku uppáhaldi?„Frekar erfitt að gera upp á milli þeirra, en þvottahúsið og búrið er í miklu uppáhaldi hjá mér. Svo er líka „auka herbergið“, svona rými sem var kannski barnaherbergi áður en er orðið að svona geymslu-gesta-tölvu-allt í bland herbergi.“ Nína segir að viðbrögðin við myndaalbúminu hafi verið góð. „Held að margir tengi á einhverjum persónulegum nótum við þessar myndir, mikill realismi í bland við nostalgíu.“ Neðst í fréttinni má sjá uppáhaldsmyndir Nínu en hún tók saman sex stykki.
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf South Park verður South America Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira