Ráðherra neydd til að segja af sér á fundi með Theresu May Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. nóvember 2017 21:34 Priti Patel eftir fund sinn með Theresu May í kvöld. Vísir/Getty
Priti Patel, ráðherra þróunarmála í Bretlandi, sagði af sér í kvöld á fundi með Theresu May forsætisráðherra. Í kjölfarið sagði hún upp skriflega og birti Guardian myndir af uppsagnarbréfi Patel og skriflegu svari May. Í dag var sagt frá því að framtíð ráðherrans í ríkisstjórn væri í húfi eftir að upp komst um leynifundi hennar. með háttsettum stjórnmálamönnum og fulltrúum stofnana í Ísrael. Fundina átti hún þegar hún var í fríi í landinu. Patel bað May afsökunar á mánudag á að hún hafi ekki greint utanríkisráðuneyti landsins frá fundunum sem hún átti í ágúst síðastliðinn. Patel átti meðal annars fund með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Enn er mörgum spurningum ósvarað um þessa leynifundi en þessi ákvörðun er tekin eftir að frekari upplýsingar hafa komið í ljós síðustu daga um þessa leynifundi. Í bréfi sínu sem merkt er 8. nóvember, biður Patel bæði May og alla ríkisstjórn Bretlands afsökunar. Breskir miðlar segja að May hafi neytt Patel til þess að segja upp. Patel tók við embætti ráðherra þróunarmála árið 2016 en hefur setið á þingi frá árinu 2010.
Tengdar fréttir Breskur ráðherra í vanda í kjölfar leynifunda Óvíst er um framtíð ráðherra þróunarmála í Bretlandi eftir að upp komst að hún hafi átt leynifundi með háttsettum stjórnmálamönnum og fulltrúum stofnana í Ísrael. 8. nóvember 2017 10:09 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira
Breskur ráðherra í vanda í kjölfar leynifunda Óvíst er um framtíð ráðherra þróunarmála í Bretlandi eftir að upp komst að hún hafi átt leynifundi með háttsettum stjórnmálamönnum og fulltrúum stofnana í Ísrael. 8. nóvember 2017 10:09