Hvítir tígrishvolpar rifu umsjónarmann sinn á hol Kristín Ólafsdóttir skrifar 8. október 2017 13:17 Myndin tengist fréttinni ekki beint en á henni má sjá hvíta tígrishvolpa í Jinan-dýragarðinum í borginni Jinan í Kína. Vísir/AFP
Tveir hvítir tígrishvolpar í dýragarði í útjaðri Bangalore á Indlandi rifu umsjónarmann sinn í garðinum á hol. Maðurinn, hinn 40 ára gamli Anji, lést af sárum sínum. Maðurinn var að smala tígrishvolpunum inn á afgirt svæði í Bannerghatta dýragarðinum í útjaðri borgarinnar Bangalore í suðurhluta Indlands. Hann hóf störf hjá dýragarðinum fyrr í þessum mánuði, sem aðeins telur nokkra daga, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins Guardian. „Fórnarlambið var að aðstoða við að ýta kattardýrunum inn í girðingu fyrir nóttina þegar þau sneru sér við og stukku á hann, þar sem ekki hafði náðst að loka einu fjögurra hliða á svæðinu almennilega,“ var haft eftir forstöðumanni dýragarðsins, Santosh Kumar. Þá tók langan tíma að komast að líki Anjis vegna þess að tígrishvolparnir sátu vörð um það. Anji var því ekki fluttur á sjúkrahús fyrr en nokkuð löngu eftir árásina. Ættingar Anjis mótmæltu í dag fyrir utan dýragarðinn en þeir krefjast 500 þúsund rúpía í skaðabætur frá dýragarðinum, eða um 805 þúsund íslenskra króna. Tæp 2000 dýr eru hýst í Bannerghatta-dýragarðinum, þar á meðal Bengal-tígrisdýr, ljón og hlébarðar.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira