Sveppi vinnur að sex þátta heimildarseríu um Eið: Mátti ekki borða í tíu klukkustundir í Barcelona Stefán Árni Pálsson skrifar 22. ágúst 2017 11:15 Spennandi verkefni framundan hjá Sveppa og Eiði Smára.
Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi eins og hann er bestur þekktur, vinnur nú að sex þátta heimildarseríu um knattspyrnumanninn Eið Smára Guðjohnsen og feril hans. Eiður Smári er farsælasti knattspyrnumaður í sögu Íslands, en hann varð Englandsmeistari með Chelsea og Spánar- og Evrópumeistari með Barcelona. Auk þess sem hann lék með fjölda erlendra félaga á sínum ferli. „Þetta hefur blundað í mér í smá tíma. Mig langaði alltaf að gera tveggja klukkustunda heimildarmynd en það er svolítið flókið verkefni að gera alvöru heimildarmynd,“ segir Sverrir í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.Ekki bara dans á rósum „Mér fannst þá liggja beinast við að gera bara einhverja þætti þar sem ég gæti líka troðið mér fyrir framan myndavélina. Ég fékk þessa hugmynd í fyrsta skipti þegar ég fór út til hans þegar hann var að spila með FC Brugge í Belgíu.“ Þar hafi Sveppi séð að atvinnumennskan væri alls ekki bara dans á rósum. „Ég held að hann sé í raun búinn að búa í ferðatösku í mörg mörg ár,“ segir Sverrir sem mun tækla alla ævi Eiðs alveg frá því að þeir voru vinir í Breiðholtinu sem ungur drengir. Gömlu vinirnir hittust allir og spiluðu fótbolta fyrir rúmlega viku og var það í raun fyrsti tökudagurinn. Þessi mynd var tekinn af þeim þá. Pegasus framleiðir þættina. „Þetta hefur allt til bruns að bera til að verða alveg frábært efni. Ég og Kristófer Dignus, sem er með mér í þessu, fórum með honum út til Barcelona fyrr í sumar og sátum með honum í sex klukkutíma og tókum upp á diktafón söguna alveg frá því að hann var í ÍR.“ Sveppi segir að þegar Eiður hafi verið hjá Chelsea hafi ekki verið hægt að fara út að borða með honum.Vesen að vera í London „Þetta var bara vesen, hann var svo frægur að það var ekki hægt að fara með honum neitt. Í fyrsta lagi fór hann bara aldrei í bæinn, hann gat ekkert farið bara á Oxford Street eins og ekkert sé. Hann var bara meira í sínu hverfi og svo þegar maður fór út að borða með honum var hann stundum látin alveg í friði en þegar einhver kom auga á hann sem elskaði enska boltann þá varð hann að koma og spjalla við Eið.“ Sveppi segir að þegar Eiður samdi við Barcelona hafi hann ekki mátt borða í tíu klukkustundir meðan samningaviðræður voru í gangi. Læknisskoðun var framundan og Eiður varð að vera á fastandi maga. Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira