Níu fjölskyldumeðlimir létust í leifturflóði Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. júlí 2017 23:41 Leifturflóðið varð í þjóðgarðinum Tonto National Forest norðan við Phoenix, höfuðborg Arizona-fylkis. SKjáskot/Google Maps
Níu meðlimir sömu fjölskyldu, sem allir höfðu stungið sér til sunds í hyl í Arizona-fylki, létust eftir að gríðarlegt magn af vatni flæddi út í hylinn. Fimm hinna látnu voru börn. AP-fréttaveita greinir frá. Að minnsta kosti fjörutíu manns vinna nú að björgunaraðgerðum á svæðinu en 27 ára karlmaður, sem einnig tilheyrir umræddri fjölskyldu, er enn týndur eftir leifturflóðið. Eiginkona hans lést í flóðinu en systir mannsins bindur vonir við að hann finnist. Yfir hundrað manns voru á svæðinu, ýmist til þess að synda eða flatmaga við bakka hylsins, þegar moldarblandað flóðið skall á viðstadda. Björgunarsveitir og yfirvöld hafa borið kennsl á níu látna í kjölfar hamfaranna en einhverjir þeirra fundust í rúmlega þriggja kílómetra fjarlægð frá hylnum. Fimm börn á aldrinum 2-13 ára voru á meðal þeirra látnu. Fjórir fjölskyldumeðlimanna, ein hjón og tvö börn þeirra, voru flutt með þyrlu á sjúkrahús vegna ofkælingar en leifturflóðið varð í Tonto-skógi í grennd við Phoenix, höfuðborg Arizona-fylkis. „Ég hef unnið hjá lögreglunni í þrettán ár og þetta er alvarlegasta flóðatilfelli sem við höfum nokkurn tímann orðið vitni að,“ sagði David Hornung, lögreglumaður á svæðinu.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira