„Allt feitt fólk veit að það er feitt og það langar ekki að vera feitt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 7. júlí 2017 11:30 Einar hefur mjög fastmótaðar skoðanir á málefninu. „
Pistillinn snýst í raun og veru um fitufordóma og feitt fólk almennt. Ég leyfi svolítið þjóðinni að njóta sín með því að taka brot af því besta úr athugasemdakerfi DV,“ segir einkaþjálfarinn Einar Ísfjörð. Einar var gestur í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 í morgun en hann var mættur til að ræða pistil sem hann skrifaði sem ber nafnið Feitu fórnarlömbin.„Þetta snýst í raun mikið um pistla sem Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður í samtökum um líkamsvirðingu, skrifar og þar stimplar hún oft feitt fólk sem fórnarlömb. Fórnarlömbum fitufordóma og oft bara sem fórnarlömb í samfélaginu.“ Einar segist vera sammála Töru um gífurlega margt eins og að fitufordómar eigi ekki að vera til staðar. „Þeir eru til staðar og við erum sammála um það. Hún segir að feitt fólk njóti oft ekki sömu mannréttinda og aðrir og því miður er það að einhverju leyti rétt. Við erum sammála um rosalega marga hluti en við erum bara með mismunandi aðferðir hvernig eigi að takast á við vandann. Mér finnst hún og hennar samtök því miður gera meira vont en gott. Það eiga allir að njóta líkamsvirðingar, ekki spurning, en það sem hún gerir að mínu mati er að fórnarlambsvæða þennan hóp.“ Hann segir að feitt fólk þurfi ekki eða eigi ekki að fá vorkunn.Tara Margrét er formaður í samtökum um líkamsvirðingu.„Þetta vandamál er sjálfskapað og fólk þarf vissulega að fá sína hjálp til að takast á við þetta. Með því að fórnalambsvæða vandann og fólk sem er feitt, fer það líta á sig sem fórnarlömb og er oft að reyna fá samþykki fyrir þessari hegðun eða lífstíl. Meira segja hefur Tara neitað fyrir það að þegar lýðheilsa er skoðuð í heild sinni að það sé óþarfi að taka offitu eitthvað sérstaklega fyrir.“ Tara sagði í athugasemd við frétt úr Fréttablaðinu á dögunum undir yfirskriftinni „Aukakílóin talin hættuleg“, að þyngdartap væri lífeðlisfræðilega ómögulegt fyrir 95-97 prósent þjóðarinnar. Sagði hún fréttina leka af fitufordómum „Þið ákváðuð síðan að bæta þessari stórkostlega hlutgerandi mynd af hauslausum feitum einstaklingi. Við eigum væntanlega ekkert betra skilið, við erum heilsufarslegur faraldur ekki satt? Við þurfum ekki andlit, við þurfum ekki persónuleika, við erum bara byrði,“ sagði Tara í athugasemd sinni við fréttina sem birtist á Vísi.Athugasemdina má sjá að neðan.„Ég er ekkert viss um það að það sé einhver að mata hana af þessum skoðunum, ég held hreinlega að þetta sé hennar persónulega skoðun. Hún er oft með einhverjar greinar á bakvið sig en ég held að hún rangtúlki rosalega mikið. Það yrði erfitt fyrir hana að finna fimm manns sem eru sammála þessari staðhæfingu.“ Einar segir að fólk verði hreinlega að líta á þetta sem vandamál og reyna að finna lausn. „Það er engin lausn að vorkenna sér og vera fórnarlamb. Allt feitt fólk veit að það er feitt og það langar ekki að vera feitt... allir. Það getur vel verið að einhver sé feitur og hann sé fullkomlega sáttur með sig og sitt. Ég skal alveg kaupa það en hann væri sáttari ef hann væri við kjörþyngd og væri í toppstandi.“ Hann segir að það geti verið mjög erfitt fyrir feitt fólk að léttast. „Feitt fólk hefur minni viljastyrk heldur en við því að sú orka rennur út eins og öll önnur orka. Þau þurfa miklu meiri viljastyrk heldur en við bara til að standa upp úr sófanum. Það er því mjög auðvelt fyrir grannt fólk að segja að þetta sé bara ekkert mál. Þetta er helvítis hellings mál fyrir marga hverja sem eru komnir ofan í mjög djúpa holu.“Hlusta má á viðtalið við Einar í heild sinni hér að neðan.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira