Stærsta þrautin í Gung-Ho rúmar nær 2 milljónir tennisbolta Stefán Árni Pálsson skrifar 13. júní 2017 16:30 Þetta ætti að vera skemmtilegt.
Í sumar er von á stærsta hlaup í heimi ef svo mætti að orðum komast. Gung-Ho skemmtihlaupið verður haldið þann 12. ágúst næstkomandi á höfuðborgarsvæðinu og er um að ræða fimm kílómetra skemmtihlaup fyrir alla þar sem að hlaupaformið skiptir ekki miklu máli heldur bara viljinn til að hafa gaman og hleypa út barninu í sjálfum sér. Með stærsta hlaupi í heimi er átt við að hér er um að ræða þrautahlaup þar sem að þrautirnar eru tíu risastórar uppblásnar hindranir. Til að setja stærð þrautanna í samhengi þá er stærsta þrautin 378 fermetrar að stærð sem er stærra en hefðbundinn körfuboltavöllur. Rúmmál þrautarinnar er 1.890 rúmmetrar og nægir það til að koma nærri því tveimur milljónum tennisbolta inn í þrautina. „Hindranirnar í Gung-Ho eru heldur betur í stærri kantinum og það var nú einmitt stærðin á þessum þrautum sem kveikti áhuga okkar á þessu hlaupi þannig að við drifum okkur til Bretlands til að kynna okkur hlaupið nánar og þetta er að verða að veruleika. Skemmtanagildið og upplifun okkar af því að prófa hlaupið sannfærði okkur um að það væri stórskemmtilegt að koma með þetta til Íslands,” segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri Gung-Ho skemmtihlaupsins á Íslandi. Davíð er einn skipuleggjenda The Color Run litahlaupsins sem haldið var í Reykjavík um síðustu helgi og eru það sömu aðilar sem standa á bak við komu Gung-Ho hingað til lands. „Það er vissulega heilmikil fjárfesting í þessum þrautum því við þurfum að kaupa allar hindranirnar sem koma hingað til lands og hleypur kostnaðurinn á tugum milljóna. Hins vegar þá höfum við tryggt okkur leyfið til að halda þessa skemmtun á öllum Norðurlöndunum og ætlum að gera það á næstu þremur árum. Byrjum á Íslandi í ágúst og verðum svo með nokkur hlaup í Danmörku og Svíþjóð í haust. Svo erum við að horfa til Noregs og Finnlands á næsta ári,” segir Davíð.Uppselt í tvö ráshólf Hlaupið fer þannig fram að 250 þátttakendur eru sendir af stað í hverju holli en startað er nýjum rástíma á 15 mínútna fresti. Því geta þátttakendur valið sér hvenær þeim hentar best að taka þátt en mikilvægt er að tryggja sér þann rástíma sem fyrst því takmarkaður fjöldi kemst í hvert holl. „Miðasalan hófst um helgina og fer alveg gríðarlega vel af stað. Það er nú þegar uppselt í tvö rástíma hjá okkur þannig að ef fólki hentar betur að leggja af stað á ákveðnum tíma þá er betra að tryggja sér miða í það ráshólf fyrr heldur en síðar." Hópur Íslendinga tók þátt í Gung-Ho sem fór fram í Cardiff fyrir skemmstu. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá myndskeið og viðtöl við íslensku þátttakendurna sem létu ekki rigningu hafa áhrif á hlaupagleði sína.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira