Allir leikmenn Barcelona fengu Audi Finnur Thorlacius skrifar 31. október 2016 09:54 Neymar valdi sér Audi RS7.
Það eru ekki bara leikmenn Bayern Munchen sem fá allir afhenta glænýja Audi bíla því það fengu líka allir leikmenn spænska liðsins Barcelona í síðustu viku. Áður en að þeir fengu bíla sína afhenta þurftu leikmennirnir fyrst að fara í ýmsar akstursþrautir á nýja Audi Q2 jepplingnum og var sú braut sett upp fyrir utan Camp Nou leikvöll Barcelona. Þar fengu leikmenn að reyna aksturshæfni sína í fimm aðskildum liðum. Eftir að sú keppni var afstaðin fengu allir leikmenn afhentan sinn uppáhaldsbíl frá Audi. Einir 16 leikmenn völdu Q7 jeppann, þar á meðal Lionel Messi, Gerard Pique, Andres Iniesta, Luiz Suarez og Rafael Alcantara. Væntanlega hafa margir þeirra verið í tengiltvinnútgáfunni. Smekkur Neymar og þjálfarans Luis Enrique var öðruvísi og fengu þeir sér RS-bíla, Neymar fékk Audi RS7 og Enrique Audi Q3 RS. Audi er einn af stærri styrktaraðilum Barcelona liðsins og samningur hefur verið þar á milli síðan árið 2006. Núverandi samningur gildir til ársins 2018 og verða því leikmenn Barcelona akandi á Audi bílum a.m.k. fram til þess tíma.Messi var einn af þeim 16 leikmönnum sem valdi Audi Q7 jeppann.Suarez kátur með nýja Q7 jeppann sinn.Þrautabrautinn sem sett var upp fyrir utan Camp Nou.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent