Hæ Kári!! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 17. október 2016 16:11 Enn og aftur stekkur Kári Stefánsson inn í umræðuna og heldur á lofti kröfu sinni um 11% af vergi landsframleiðslu renni til heilbrigðismála og að heilbrigðisþjónusta verði með öllu gjaldfrjáls. Mig rekur þó minni til þess að Kári hafi í flæmingi fallið frá þessari 11% reglu sinni þegar að honum var bent á þá einföldu staðreynd að færi svo að reglan yrði tekin upp, þá yrði ekki endilega á vísan að róa í fjármögnun á heilbrigðiskerfinu, þar sem að á samdráttarskeiði yrði upphæðin sem færi í heilbrigðismálin lægri þar sem landsframleiðslan yrði minni. En þökk sé málfrelsinu að mönnum er það að sjálfsögðu frjálst að endurtaka jafn oft og þá langar, skoðanir sínar , óháð því hvort þær standist skoðun eða ekki. Það skal þó strax sagt að þetta eru þó engu að síður afar göfug markmið sem að gengju örugglega upp í fullkomnum heimi. Þetta þýðir hvort eð er bara 91 milljarðs aukningu til heilbrigðismála frá því sem það er í dag. Það er svona álíka mikið og kostar að reisa eitt og hálft hátæknisjúkrahús, reka LSH í tvö ár og framlögin væru þá 100% hærri en þau voru á síðustu fjárlögum hinnar norrænu velferðarstjórnar. Vissulega væri hægt að ýta þessu strax í framkvæmd með því að nota afgang fjárlaga 2016. Við gætum meira að segja viðhaldið þessu í heil fjögur ár með þeirri leið. Svo gætum við væntanlega lokið sölu á 70% hlut ríkisins í fjármálakerfinu og keypt okkur með því fjögur ár til viðbótar. Þessu fylgir þó sá „smá galli“, að allt annað sem ákveðið hefur verið að ráðast í á næstu árum yrði að bíða um ókomin ár. Fyrst ber þar að nefna að ná niður gagnslausasta útgjaldalið ríkissjóðs sem er vaxtagreiðslur lána. Sú upphæð stendur nú í 70 milljörðum króna og fer ekkert niður nema skuldir ríkissjóðs verði greiddar niður eins og áætlað er að gera. Eins er það víst að fyrirhugaðar fjárfestingar í samgöngum og öðrum innviðum yrðu að stærstum hluta að sitja á hakanum um ókomin ár. Auk þess sem að nær örugglega má áætla að fjármögnun háskólasjúkrahúss við Hringbraut kæmist auðveldlega í uppnám. Eini kosturinn við það yrði þó væntanlega sá, að Kári fengi eitthvað nýtt til þess að skammast yfir í fjölmiðlum. Ég hafði nú í einfeldni minni borið þá von í brjósti að jafn sprenglærður og vel gefinn maður sem Kári Stefánsson sannarlega er, færi nú að beina sjónum sínum að því sem kannski er stóra málið varðandi heilbrigðiskerfið í dag. Þó vissulega megi alltaf gera betur við fjármögnun í heilbrigðiskerfinu sem og annars staðar, þá er það nú svo samkvæmt nýlegri skýrslu Mc Kinnsey um íslenska heilbrigðiskerfið að verulega vantar upp á það að áður en að auknum fjármunum er veitt til heilbrigðismála, eins og vissulega stendur til að gera, sé það skilgreint með markvissum hætti í hvað þeir fjármunir skuli fara. Það er nefnilega þannig, að í upphafi hverrar vegferðar, er oftar en ekki betra að hafa tilganginn á hreinu svo að sem minnst fari úrskeiðis á leiðinni. Ég er nú ekki jafn vel settur og Kári að hafa dagskrá Bjarna Benediktssonar fyrir framan mig til þess að geta metið hvort að Bjarni hafi hreinlega tíma til þess að mæta honum í beinni útsendingu í sjónvarpi. En hins vegar veit ég jafn vel og ég sit hér og skrifa þessi orð, að ekki er það kjarkleysið sem háir Bjarna, hafi hann ekki tök á því að mæta Kára þessa fáu daga sem nú eru til kosninga. Eitt get ég þó fullyrt fullum fetum og þreytist seint á, að Bjarni er sá eini af öllum þeim flokksformönnum sem nú leiða flokka sína til kosninga, sem hefur uppi einhver gagnleg plön svo nálgast megi kröfur Kára á varanlegan hátt og til frambúðar, þ.e. að tryggja heilbrigðiskerfinu sem næst þeirri upphæð sem nægir. Ég tel þó líklegt ef að hér tekur við að loknum kosningum jafn róttæk vinstri stjórn og nýjustu kannanir og fréttir gætu bent til, að krafa Kára um ellefu prósentin myndi leysast af sjálfu sér. Enda einsýnt að slíkri stjórn tækist með fjandsamlegri skattastefnu sinni og sósíalískum töktum sínum við efnahagsstjórn landsins að keyra landsframleiðsluna niður í þær lægðir að í það minnsta núverandi upphæð sem nú fer til heilbrigðismála myndi stemma við 11% af vergri landsframleiðslu og færi jafnvel enn hærra, Kári yrði þó að gera sér það að góðu að bíða þyrfti með hugmyndir um gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu og jafnvel sætta sig við að greiðsluþátttakan ykist eitthvað svo mæta mætti fyllilega kröfunni um ellefu prósentin. En hey krakkar, þá gæti Kári alltént haldið áfram að vera reiði kallinn sem skrifar greinar í blöð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kosningar 2016 Skoðun Skoðun Mest lesið Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar