Hrekkti skólameistarann og stal snakki af ferðamönnum Tinni Sveinsson skrifar 25. ágúst 2016 14:00
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, er nú komin á fjórða keppnisdag. Óskar Páll Davíðsson og Sveinn Andri Jóhannsson tókust á í gær á þriðja keppnisdegi fyrir hönd Framhaldsskólans á Húsavík og Tækniskólans. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan en þeir félagar áttu það meðal annars sameiginlegt að beita hrekkjum til að reyna að tryggja sigur. Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. Atkvæðagreiðsla fyrir annan keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Bjartur Jóhannes Trenton Björnsson úr Fjölbrautarskólanum í Mosfellsbæ og Björgvin Hrannar Pálsson úr Menntaskólanum á Tröllaskaga. Björgvin Hrannar sigraði það einvígi fyrir hönd MTR og mun því halda áfram í næstu umferð.Björgvin sigraði á öðrum keppnisdegi fyrir hönd MTR.Menntaskólinn á Akureyri og Fjölbrautarskólinn við Ármúla mætast í dag, á fjórða keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á morgun. Keppnin heldur áfram næstu fjórar vikunar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála. Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning. Dagskrá keppninnar:22. ágúst Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)23. ágúst Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)24. ágúst Framhaldsskólinn á Húsavík vs. Tækniskólinn25. ágúst Menntaskólinn á Akureyri vs. Fjölbraut við Ármúla26. ágúst Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi29. ágúst Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund30. ágúst Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands31. ágúst Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ1. september Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri2. september Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. FlensborgarskólinnSigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.
So You Think You Can Snap! Tengdar fréttir Fyrsta Snapchat-keppnin milli íslenskra framhaldsskóla Keppnin kallast So You Think You Can Snap! og hafa tuttugu framhaldsskólar skráð sig til leiks. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official. 21. ágúst 2016 22:30 Gekk inn á mömmu og hoppaði í höfnina Bjartur Jóhannes úr Mosfellsbæ og Björgvin Hrannar frá Tröllaskaga lögðu mikið á sig fyrir sigur í So You Think You Can Snap! 24. ágúst 2016 14:30 Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun South Park verður South America Lífið Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Lífið samstarf Kappsmál sett á ís Lífið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Fleiri fréttir Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Sjá meira
Fyrsta Snapchat-keppnin milli íslenskra framhaldsskóla Keppnin kallast So You Think You Can Snap! og hafa tuttugu framhaldsskólar skráð sig til leiks. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official. 21. ágúst 2016 22:30
Gekk inn á mömmu og hoppaði í höfnina Bjartur Jóhannes úr Mosfellsbæ og Björgvin Hrannar frá Tröllaskaga lögðu mikið á sig fyrir sigur í So You Think You Can Snap! 24. ágúst 2016 14:30