Eiður og félagar í 2. sæti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2016 19:40 Eiður var valinn í lokahóp íslenska landsliðsins sem fer á EM í Frakklandi í næsta mánuði. vísir/valli
Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður þegar Molde vann 4-2 sigur á Strömsgodset á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Molde er í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir toppliði Rosenborg. Ole Gunnar Solskjaer skipti Eiði inn á í stöðunni 3-0 á 61. mínútu. Mínútu síðar minnkuðu gestirnir muninn en Molde svaraði að bragði, komst í 4-1 og þá var björninn unninn. Strömsgodset lagaði stöðuna á 81. mínútu en það breytti engu um úrslitin. Lærisveinar Rúnars Kristinssonar í Lilleström unnu góðan 1-0 sigur á Brann á heimavelli. Erling Knudtzon skoraði eina mark leiksins á markamínútunni, þeirri fertugustuogþriðju. Árni Vilhjálmsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Lilleström sem er í 7. sæti deildarinnar með 16 stig. Hannes Þór Halldórsson hélt marki sínu hreinu þegar Bodö/Glimt mætti Vålerenga. Lokatölur 0-0. Bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar; Vålerenga í 11. sæti með 10 stig og Bodö/Glimt með átta stig í 13. sæti. Elías Már Ómarsson kom inn á sem varamaður hjá Vålerenga á 54. mínútu.Leiðrétting:Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar stóð að Eiður Smári hefði komið inn á í stöðunni 2-1 fyrir Molde og liðið hafi skorað tvö mörk á næstu tveimur mínútum. Það er ekki rétt og hefur verið leiðrétt.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Sjá meira