Bein útsending frá afhjúpun Volvo S90 kl. 17:30 Finnur Thorlacius skrifar 2. desember 2015 16:38 Þessa mynd af Volvo S90 sendi Volvo frá sér í dag. Volvo
Í dag kl. 17.30 mun Volvo afhjúpa Volvo S90 í beinni útsendingu á YouTube. Á viðburðinum, sem fer fram í Gautaborg, mun Volvo kynna bílinn og ýmsar nýjungar. Þar á meðal eru spennandi nýjungar í átt að sjálfkeyrandi bílum og frekari þróun á öryggiskerfinu Borgaröryggi (e. City Safety) sem nú nemur einnig stór dýr, hvort sem er í myrkri eða dagsbirtu. Volvo ætlar með þessum laglega bíl að hrista uppí markaðnum fyrir stærri lúxusbíla og bíta hressilega af kökunni frá BMW, Mercedes Benz og Audi. Þessi S90 bíll leysir af hólmi S80 og verður sölu hans hætt. Vélbúnaður S90 verður að mestu sá sami og í boði er í nýja XC90 jeppa Volvo og er þar aðeins notast við fjögurra strokka vélar, þó í mismunandi útfærslum, allt að 400 hestöflum með rafmótorum til aðstoðar.
Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent