Kári: Það besta sem ég hef upplifað Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2015 08:30 Kári stóð vaktina vel í vörn Malmö í gær. vísir/getty
Malmö tryggði sér í gær sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu annað árið í röð eftir 2-0 sigur á Celtic í seinni leik liðanna í síðustu umferð forkeppninnar. Skosku meistararnir unnu fyrri leikinn á Celtic Park með þremur mörkum gegn tveimur og Malmö fór því áfram, 4-3 samanlagt. Ísland mun því eiga tvo fulltrúa í Meistaradeildinni í vetur; Kára Árnason, leikmann Malmö, og Alfreð Finnbogason, leikmann Olympiakos. „Þeir sköpuðu ekki mikið. Við höfðum góða stjórn á leiknum og þeir náðu aldrei að pressa okkur,“ sagði Kári eftir leikinn. Markus Rosenborg kom Malmö yfir á 23. mínútu og sænsku meistararnir fóru með 1-0 forystu inn í hálfleikinn. En hvað sagði Åge Hareide, knattspyrnustjóri Malmö, við sína menn í hálfleik? „Hann sagði okkur að brosa. Við værum með forystu og þeir væru ekki að skapa neitt,“ sagði Kári sem kom til Malmö frá enska B-deildarliðinu Rotherham fyrr í sumar. „Þetta var magnað. Þetta er það besta sem ég hef upplifað,“ bætti Kári við en dregið verður í riðla í Meistaradeildinni á morgun.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Sjá meira