Tveir Kia Sportage til arekstur.is Finnur Thorlacius skrifar 7. júlí 2015 16:45 Kia Sportage bílar arekstur.is.
Fyrirtækið arekstur.is fékk nýverið afhenta tvo nýja og vel búna Kia Sportage sportjeppa. Fyrirtækið sérhæfir sig í þjónustu við tryggingafélög og viðskiptavini þeirra, lendi þeir í umferðaróhöppum. ,,Kia Sportage bílarnir hafa komið mjög vel út og reynst afar vel í öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem við höfum þurft að sinna. Þeir eru bæði fallega hannaðir, með gott umgengi og með umhverfismildar og eyðslugrannar vélar. Þá er sjö ára ábyrgðin sem Kia býður upp á á bílum sínum líka mikilvæg í svona rekstri þar sem bílarnir eru í mikilli notkun. Bílarnir eru áberandi í umferðinni enda vel og skemmtilega merktir,” segir Ómar Þorgils Pálmason, framkvæmdastjóri arekstur.is. ,,Við sjáum um að aðstoða við útfyllingu á tjónaskýrslum, mælingar og myndatöku af vettvangi umferðaróhappa, sem lögregla sinnir ekki, og úrvinnslu gagna. Allir starfsmenn okkar eru sérþjálfaðir með mikla og langa reynslu af vinnu þar sem umferðaslys og umferðaróhöpp hafa átt sér stað. Það tryggir fagleg vinnubrögð og að allra nauðsynlegra gagna sé aflað á vettvangi tjóns,” segir Ómar en hann á að baki 20 ára starfsferil í lögreglunni. Ómar segir að starfsmenn fyrirtækisins séu vel þjálfaðir í skyndihjálp og vanir að takast á við erfið mál og stjórna vettvöngum þar sem óhöpp hafa orðið. Nánari upplýsingar er að finna á arekstur.is og getur nýst þeim vel sem lenda í óhöppum i umferðinni.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent