Hildur Björg í sama skóla og María Ben Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2014 08:30 Hildur Björg Kjartansdóttir, til vinstri, með nöfnu sinni og fyrirliða Snæfells, Hildi Sigurðardóttur. Vísir/ÓskarÓ
Hildur Björg Kjartansdóttir, einn allra besti leikmaður Dominos-deildar kvenna í körfubolta á nýloknu tímabili og lykilleikmaður Íslandsmeistara Snæfells, hefur ákveðið að fara í Texas-Pan American háskólann. Texas-Pan American háskólinn segir frá því á heimasíðu sinni að Hildur Björg sé búin að samþykkja að spila fyrir kvennakörfuboltaliðs skólans en hún fær fullan skólastyrk hjá UTPA. University of Texas-Pan American er í Edinburg sem er í suður Texas alveg við landamærin við Mexíkó. Larry Tidwell, þjálfari skólaliðsins, kom til Íslands á dögunum og fylgdist með Hildi Björg spila í úrslitakeppninni. Hildur Björg er ekki fyrsta íslenska körfuboltakonan til að spila með UTPA því María Ben Erlingsdóttir, núverandi leikmaður Grindavíkur, var í skólanum í fjögur ár. Hildur Björg var með 15,2 stig, 9,9 fráköst og 1,6 stoðsendingar að meðaltali í leik í deildarkeppninni í vetur en hækkaði allar tölur í úrslitakeppninni upp í 15,5 stig, 10,1 frákast og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það er að sjálfsögðu mikill missir fyrir Snæfell að Hildur Björg sé á förum en það var þó vitað í nokkurn tíma að hún hefði mikinn áhuga á að spila í bandaríska háskólaboltanum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira